HROLLUR.COM

keyrir á nýju kerfi

 

  • Heim
  • Bloggið
  • Fréttirnar
  • Myndirnar
  • Linkarnir
  • Hafa samband
  • Upload
  • Hrollur.net

Heim sæta heim

By Almar on November 20, 2009 11:56 AM | No Comments

norge.jpgGreyið Noregur missir nú mikið þegar ég fer heim hehe, Ég vill allavega meina það.  Eftir að hafa sent um 40 umsóknir fékk ég einungis svör frá 2 aðilum.  Báðir sögðu mér að ég yrði að kunna norsku til að fá vinnuna.  Komst ekki í eitt einasta viðtal.  Ég hélt að það yrði bara "pís of keik" að fá vinnu þarna, og fyrsta mánuðinn var ég ekkert að sækja um nema nokkrar vinnur, því ég vildi ekki gera hvað sem er og gæti alveg valið úr, en svo virðist ekki vera.  Ég get eiginlega ekki kennt umsóknunum sjálfum um áhugaleysi þeirra sem ráða, því ég notaði mörg mismunandi form, stundum fyllti maður út form á netinu, öðrum stöðum var notað form sem var gert fyrir mig á vinnumálastofnun í Noregi og svo sendi ég einnig mína eigin ferilskrá og umsóknir.  Undir lokin var ég meiraðsegja farinn að ýkja gróflega kunnáttur og reynslu, en enn komu engin svör.  Eftir að hafa kvartað yfir þessu hjá NAV (norsku vinnumálastofnuninni) þá segja þau mér að það sé allt fullt af útlendingum núna, sem kunni ekki málið og séu að sækja um þessar sömu vinnur og ég, og norðmenn séu ekkert alltof hrifnir af þeim.  En ég hef samt ekkert gefist upp.  Það er fínt að fá að fara heim núna fyrir jólin, er orðinn ótrúlega þreyttur á þessu og langar í pásu. Maður hellir sér svo í þetta aftur eftir áramót.  Veit ekki hvort ég fái að fara svona aftur í 3 mánuði, eða hvort ég sæki bara um á fullu og reyni að fá eitthvað án þess að geta farið í viðtal.  Allavega er ég alveg æstur í að komast í vinnu erlendis.

Eina leiðinlega við að koma heim efitr þessa 100 daga reisu verður að sjá Nissa greyið allan lemstraðann á flugvellinum.  Ég hélt að maður væri laus við svona á Akureyri, það er ekki nema ár síðan það var síðast brotist inní hann í Reykjavík og öllum græjunum mínum stolið, núna var ekkert í honum til að stela, þannig það var reynt að stela bílnum sjálfum.  Bæði með því að troða skrúfjárni í svissinn, og svo klippa á alla vírana og reynt að tengja framhjá.  Ég var nú samt að vona að ég kæmi honum í gang og gæti notað hann þó það væri ekki nema í 2-3 mánuði, það á eftir að koma í ljós.  Þjófarnir komu honum greinilega ekki í gang, þannig það það gæti verið eitthvað skemmt í honum.  Innréttingin er svo í rúst og brotin rúða.  Og að sjálfsögðu reynir löggan ekki einusinni að skoða þetta, hefur engan áhuga á því, einsog í fyrra skiptið.  En það þýðir ekkert að vera velta sér uppúr því.

Á mánudagsmorgun 23.nóv eru flugin mín, maður neyðist til að fara í allavega 2 flugvélar.  Samt hefur gengið svo vel í síðustu flugferðum að ég held ég sé svosem ekkert smeikur við þetta lengur.  Ég fer með SAS og millilendi í Oslo, stoppa þar í 50 mín, svo er það beint til Keflavíkur og lending þar klukkan 12 að hádegi.  Svo hugðist ég vera nánast í heila viku í Reykjavík, kíkja á djammið og svona :)  það verður ekki slæmt, get eiginlega ekki beðið! :)

Vatnsberi: Hjálpin sem vatnsberinn vildi ekki áður, býðst á ný og gefur honum tækifæri til þess að fara öðruvísi að núna. Látið það eftir ykkur að njóta hringiðunnar.

Day 43

By Almar on September 26, 2009 4:01 PM | 6 Comments

... Almar is in the diaryroom. Hehe þenan djók skilur væntanlega enginn nema systir mín, en ég get alveg lofað því að hann er alveg geeeeegjaður!! ;)

Þá er maður búinn að vera 43 daga í útlöndum, ekki kominn með vinnu, en að „vinnna" í því. Ég las einhversstaðar frásögn frá 2 stelpum sem fóru til Noregs í atvinnuleit og sögðu að það vildi enginn ráða þær því þær kynnu ekki málið, önnur fór heim en hin rétt komst í vinnu áður en hennar 3 mánuðir frá vinnumálastofnun voru liðnir. Ég held ég sé alveg sammála því. Fyrst þegar ég kom hingað sá ég um 30 nýjar atvinnuauglýsingar á dag og hugsaði að þetta yrði nú ekki mikið mál, svo fór að draga úr þeim. Það er samt hellingur af nýjum störfum í boði hérna á þessum helstu atvinnuleysissíðum, en þar er helst hjúkrunarfræðingar, verkfræðingar, kennarar og önnur störf sem krefjast sérþekkingar. Það koma nokkur störf sem venjulegur leikmaður ætti að ráða við en þá er oftast krafist norskukunnátu, bæði munnleg og skrifleg. Mér þótti það svoltið skrítið fyrir skúringarstarf sem ég sá auglýst í vikunni.
Ég hef samt náð að sækja um nokkrar vinnur, þar á meðal bilaflutningamaður hjá Hertz bílaleigunni (starf sem mig langar mikið í), næturvörður á hóteli hér í bæ (veit ekki hvernig það gengi), lagerstarfsmaður (líst vel á það), lagerstarfsmaður með lyftarapróf sem sendir vörur heim (líst líka vel á það), starfsmaður í tæknideild sjúkrahússins hérna, deild sem þjónustar tölvur, sjónvörp og síma. Það hefði verið fín vinna, en það er sú eina sem hefur svarað mér. Hringdi í mig kona á fimmtudaginn og sagði „hallú, er de Almagr Ögrn" hehe og ég sagði „ja ja" þá sagði hún fullt af einhverju sem ég ekki skildi, sem ég tel mig eftirá hafa kannski skilið hefði hún sagt hlutina hægar. En jæja, ég spurði hvort hún væri til í að tala ensku og það var ekkert mál. En þá sagði hún strax, víst þú skilur ekki norsku þá tekur sig ekki fyrir mig að koma í viðtal, því það væri stefna hjá sjúkrahúsinu að allir töluðu og skildu norskuna og því gæti ég ekki fengið vinnu. Það yrði of mikið vesen að kenna mér og koma mér inní hlutina á ensku. Og bauð mér að lokum að endilega sækja bara um aftur ... þegar ég væri búinn að læra norskuna. Þetta er kannski alveg skiljanlegt, en bömmer því þetta hefði getað orðið skemmtileg vinna. Norðmenn eru jafngóðir og Íslendingar í ensku finnst mér, ég held að í svona tæknideild þá ættu þeir flestir auðvelt að segja mér til á ensku, en maður verður víst að sætta sig bara við þetta og fara á NORSKUnámskeið!

Annars fer nú vel um mann hérna í Stavanger, ég bý hjá Össa bróðir mömmu, alveg á besta stað í miðbænum. Canal+ , kapalsjónvarp og internet á heimilinu, hvað þarf maður meira :) Alveg ótrúlegt að hann nenni að hafa mig hérna hangandi alla daga, þar sem ég held til í stofunni með annað augað á sjónvarpinu og hitt á tölvunni. Hann reddaði mér reyndar hjóli, sem ég er búinn að nota alveg helling. Það er mjög gaman að hjóla hérna í kring, mikið af hjólastígum og uppáhaldsleiðin mín er að hjóla á göngustíg í kringum Mosvatnet sem er hérna rétt hjá. Það er reyndar svoltið mikil traffík á göngustígnum þar, fólk að labba, skokka og hjóla. Þetta er stundum hálfgert öngþveiti. Ég hef sennilega farið svona 10x, og finn strax að þolið sem var MJÖG lélegt í fyrstu ferðinni er búið að margfaldast núna, og maður blæs ekki úr nös af 10 Km eða svo :)

Það var ótrúlega fínt að lenda hérna í Noregi 17. Ágúst, eftir góða djammhelgi með Möggu í Kaupmannahöfn. Amma, Afi og Össi tóku á móti mér á vellinum og var mjög fínt að hafa þau hérna líka. Annars væri ég líklega ekki búinn að ferðast og sjá alveg helling af Noregi. Við keyrðum uppá Halsnøy þar sem Elva systir mömmu, maðurinn hennar og kötturinn Missy búa og vorum þar í heila viku. Það voru 2 ferjur, risabrýr og jarðgöng á leiðinni, enda er þetta eyja. Mjög skemmtileg leið að fara. Eyjan mjög róleg og góð, og örugglega fínt að búa þar. Svo erum við líka búin að fara á fullt að stöðum sem ég kann ekki að telja upp, en maður er búinn að vera einsog alvöru túristi, fín tilbreyting frá spánarferðum þar sem maður sá ekkert meira en barinn ... þó það sé alveg fínt líka :)  Talandi um bari þá virðist næturlífið hérna í stavanger vera nokkuð fjörugt, ég hef samt ekki farið neitt á djammið enþá, og búinn að sleppa úr mánuð! Veit ekki hvenar eða hvort það hefur gerst áður, en er ekki frá því að það sé gott fyrir heilsuna ... en ég ætla samt ekkert að hætta djamma :)

Ég er alltaf með gamla símanúmerið mitt í gangi, þó ég noti ekkert símann, sé hvort ég missi af einhverjum símtölum og svona, annars er nýja númerið +47 988 49204, númer sem ég man aldrei og þarf alltaf að fletta því upp. Það er ekkert rosalega dýrt að hringja í mig frá Íslandi, ódýrast fyrir þá sem eru með frelsi hjá símanum og hringja í 1100 47 988 49204, þá kostar mínútan 24 krónur í stað 35 króna, dýrast að hringja úr gsm áskrift sem er svoltið sérstakt, en þetta er allt hér. SMSið er svo á 20 krónur, gjöf en ekki gjald! :) Það þarf samt að skrá sig í þessa "11" þjónustu.
Netfangið almar(hjá)internet.is skoða ég líka daglega í viðbót við að vera alltaf á facebook og msn, þannig maður er ekkert sambandslaus. Er meiraðssegja búinn að fá mér norskt 3G sim-kort í tölvuna mína svo ég geti verið á netinu hvar sem er, sem mér finnst vera voða mikið sport.  
Má svo ekki gleyma að minnast á nýja norska debetkortið mitt :) þó það sé eiginlega ekkert inná því ... samt gaman að vera búinn að fá svoleiðis. 

Jæja, best að enda þetta blogg, kominn yfir 1000 orð, þekki enga sem geta lesið svona langt án þess að sofna. Þannig ég kveð að sinni.

Vatnsberi: Þú gætir fengið óvænta gjöf eða glaðning í dag. Vertu því ekki að dragnast þetta áfram heldur hristu af þér slenið og komdu þér að verki.

Google Search

March 2010

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Myndirnar

Mynd_032.jpg
EPSN5055.JPG
EPSN4853.JPG
EPSN3976.JPG
Picture_30_g_2008_061.jpg
IMG_0311~1.JPG
EPSN3799.JPG
EPSN4252.JPG

Recent Entries

  • Heim sæta heim
  • Day 43
  • T minus 500 hours
  • Hæ hó ...
  • Noregur
  • Hrollur Púnktur Kom
  • Varta í Nissa
  • Nöldurhornið
  • hrollarnir báðir fluttir
  • Akureyringur

Recent Comments

  • Lernspielzeug: Hi, i must say fantastic website you include, i stumbled read more
  • Cedric Matteucci: Definitely agree with what you stated. Your explanation was certainly read more
  • make money online: Terrific work! This is the type of information that should read more
  • ozkan: good site read more
  • colorblind collin: Hi. I wished to advise you that some parts of read more
  • Moshe Dorner: Hello, great article, I thouroughly enjoyed reading this. the article read more
  • Wm Veenstra: Hello, fantastic post, I truly enjoyed reading this. This article read more
  • Easy Jobs: Simply want to say your article is as tonishing. The read more
  • Helga: já nákvæmlega það sem ég er löngu búin að segja read more
  • Almar: Hehe, já þetta er rétt hjá ykkur báðum, maður verður read more

Search this blog

Powered by Movable Type 5.01

Admin Login      



Individual visits per day

Powered by Movable Type