HROLLUR.COM
keyrir á nýju kerfi

 

  • Heim
  • Bloggið
  • Fréttirnar
  • Myndirnar
  • Linkarnir
  • Hafa samband
  • Upload
  • Hrollur.net

Gáta dagsins ...

By Almar on August 8, 2007 11:15 PM | 10 Comments

dk.gif  
Já, hérna kemur ein erfið:
Hvað er bleikt að aftan, rautt í miðjunni og klesst að framan???

.....svar: (sjá)
 

Já, greyjið Nissi lenti í smá óhappi á leiðinni norður, en ég var að keyra Öxnadalsheiðina og var rétt ókominn að Gunnhildarstöðum (ég kann samt ekkert í landafræði, þetta stendur í tjónaskýrslunni) þegar 2 bílar taka frammúr mér og öðrum bíl ... því ég var BARA Á 90! og troða sér fyrir framan, en þá beygir 5. bíllinn sem var fremstur að Gunnhildarstöðum og allir bremsa, nema Nissi, hann var eitthvað svo seinn að fatta því hann var að skoða ljósin ofaná einhverjum jeppa sem hann var að mæta, svo þegar ég fattaði að það stefndi í óefni þá var bremsunni skutlað í gólfið og öflugt 14 ára gamalt ABS bremsukerfið :) byrjaði að mala á fullu, en allt kom fyrir ekki neitt, ég sá að það yrði ekki stöðvað í tæka tíð og tek þá ákvörðun að beygja til vinstri, fyrir aðkomandi umferð :o .. eða Nissi gerði það, ég man ekki eftir að hana tekið neinar ákvarðanir í þessu ... en allavega þá nær bíllinn að sveigja hjá (útaf öfluga ab-essinu :) en reyndar aðeins of seint og stangar hægra horninu aftaná vinstra afturhorn bílsinns fyrir framan. Svo enda ég útaf hinumegin við götuna ... og var það heppinn að það var ekki umferð á móti, því það hefði nú ekki verið spes. Fólkið sem ég keyrði á var alveg þvílíkt næs, þau áttu ekki einusinni bílinn sem þau voru á, voru með hann í láni .. gaman að því. En ég fór með þeim á stöðina á Akureyri og við fylltum út tjónaskýrslu. Þau hjálpuðu mér líka að koma Nissa uppá götuna, ég fór á honum. Fyrst hélt ég að hann væri ónýtur, því það komu alveg þvílíku lætin þegar ég var hálfnaður í bæinn, svo var það alveg í 2 daga á eftir, en svo heyrði ég þegar það hætti líka skyndilega og eitthvað skaust frá bílnum, en þetta hefur örugglega verið möl einhversstaðar í bremsunum, því ég heflaði alveg kantinn þegar ég fór útaf. En núna virðist bara ekkert vera að nissa lítla, meiraðsegja stefnuljósið virkar þó brotið sé, það er meiraðsegja enn gult! Ég þarf bara að festa stuðarann upp, hann stendur svona út því ég tjaslaði honum bara í næsta gat sem ég fann. En þetta var alveg fínt svona "wakeup call" maður þarf að passa sig víst í þessari umferð. En greyjið nissi, það er ekki langt síðan að hann glitraði einsog engill í sólinni: (sjá) en núna er hann bara klesstur. Og ég sem var á leið á VÍS þegar ég ætti næst kvöldvakt og heimta lækkun á iðgjöldum, því ég lendi aldrei í neinu :( Hefði betur farið síðast þegar ég nennti ekki.
Svo lærir maður aldrei neitt af reynslunni, ég var búinn að halda mér á 90 alla leiðina frá Reykjavík, mætti örugglega 10 lögubílum, lenti í vegatálma á Blönduósi og var kominn framhjá Varmahlíð þegar ég var orðinn ansi leiður á þessari hægferð og ákvað nú að taka frammúr einum bíl sem mér þótti fara fullhægt. Nissi var kominn í svona 115 og var að fílaða :) ... og enginn bíll á þvílíkt beinum vegi þannig að ég var ekkert að hægja á mér... en er þá ekki ómerktur bíll, alveg lengst í burtu hjá einhverjum sveitabæ að skjóta á mig með laser mæli, ég náttúrulega negli niður um leið og ég heyri í radarvaranum og skyldi ekkert hvað þetta væri því það var enginn bill á veginum, en svo svona 200 metrum seinna kem ég að sveitabæ þar sem einhver lögga stendur útí rokinu og gerir svona handahreyfingar að ég eigi að keyra hægar... ekki ósvipað þegar Ross í Friends vildi láta lækka eitthvað... nema hann hafi verið að biðja mig að stoppa, ég veit það ekki, ég vinkaði bara og hélt mína leið .. á 80! En ef þeir hafa verið að sekta þarna í felum með einhverja myndatöku þá skila ég inn ökuskýrteininu mínu og fer með nissa í endurvinnsluna, því þá er sko nóg komið! Þetta var alveg ekta hraðaksturskafli samt, í fyrra hefði ég verið á svona 150 þarna, þannig að mér finnst 115 bara nokkuð gott. En örlögin eru grimm, af því að þeir hægðu á mér, þá lenti ég í þessari bílalest, bílar fóru frammúr mér og nissi er klesstur. Hver veit, kannski hefði það verið enn verr hefði ég haldið mínum hraða.
Haha, svo gerðist eitt fyndið á leiðinni suður, þá var ég að nálgast göngin og kemur svona skilti "munið hraðamyndavélarnar" svo eru aldrei neinar hraðamyndavélar ... þannig að ég sagði alveg upphátt og einn í bílnum "munið að kaupa þessar hraðamyndavélar og setjið svooo niður þessi skilti" neinei... er þá ekki bara þessi fína hraðamyndavél þarna í kantinum svona 100 metrum seinna, og ég á svona 105 .. en hún blikkaði ekki og radarvarinn lét ekki vita, þannig að ég held að kassinn hafi verið tómur. En ég get svo svarið það að það hefði verið alveg inní myndinni að bakka óvart á þennan staur hefði þetta eitthvað blikkað á mig ... ég er orðinn mjög bitur útí þetta hraðaeftirlit. Þó svo það virðist nú vera að gera sitt gagn kannski, þetta er bara svo erfittttt!!!!

En síðast þegar ég fékk sekt, þá var ég svo eyðilagður að ég ákvað að gefa mér gjöf til að hressa mig við hehe, og fékk mér þarna sky-hd móttakarann, núna þegar ég kom heim þá dugði ekkert minna en flug til köben til að hressa mig við. Fyrir algera tilviljun þá álpaðist ég inná Icelandexpress síðuna í hádeginu í dag, hafði ekki hugmynd um að það væri verið að bjóða fullt af sætum á 2900, setti inn til gamans þá dagsetningu sem ég myndi vilja ferðast á og þá var laust báðar leiðir á þessu verði, ég gat bara ekki annað en keypt helvítis miðana ... þannig að ég er að fara til köben 22. til 29. ágúst, í viku! Ætla reyndar að tékka á verðum frá köben til Dublin, langar að kíkja á Gunnuna, það var nú líka komment frá henni á síðunnu hennar Freyju sem fékk mig til að kíkja á flugið á annað borð.
En vá, þetta er orðinn full langur sjálfsvorkunnarpistill hjá mér, er greinilega með heitt á könnunni í munninum einsog systir mín kallar það - haha

En fyrir þá sem nenntu ekki að lesa allt, þá var þetta ekkert merkilegt, bara eitthvað nissi klesstur... sektir... hraðamyndavélar .... köben ... dublin ... og eitthvað...

Stjörnuspáin mín af mbl í dag: (ekki má gleyma henni)
Vatnsberi: Þegar lífið fer út af sporinu, skaltu ekki álíta að þú eigir það skilið og taka því þegjandi. Fyndu út hvað er virkilega að. Hefurðu heyrt um karma?

Er ekki karma það sama og að eiga það skilið ??? ... nei ég bara spyr.

10 Comments

anný | August 9, 2007 2:02 PM | Reply

vá ég þarf nú bara að leggja mig eftir þetta hehe gott hjá þér að skella þér bara út:)

rúnar | August 10, 2007 12:33 PM | Reply

almar.. þetta var lengsta blogg sem ég hef lesið. Lengra heldur en ritgerðirnar hans siggeirs.

afhverju geriru mér þetta?

almar | August 10, 2007 3:12 PM | Reply

Já, ég veit... ég tapaði mér um stund :)

batgirl | August 12, 2007 6:30 PM | Reply

löggurnar hérna fyrir austan eru líka alveg kreizí..stoppuðu andreu vinkonu á 105 niður brekku og þegar hún spurði þá afhverju þeir hefðu verið að stoppa hana þá sagði gamla löggan í bílnum "hann vildi það, ekki ég"!! síðan rétt á eftir þá var ég stoppuð fyrir að vera ekki í belti innanbæjar-eða það hélt löggan!! hehe ég fékk enga sekt en andrean þurfti að punga út einhverjum þúsundköllum!!

almar | August 14, 2007 1:51 PM | Reply

Helvítis löggur .. það mætti halda að þeir séu í einhverri keppni um hver sektar mest.

En að öðrum málum, þá mætti ætla að boðunum í Nissa myndi fækka við klessuna ... en nei hehe, ég var stoppaður fyrir utan ríkið í skeifunni á laugardag, og einhver strákur vildi endilega fá að kaupa kaggann, lét mig taka niður númerið sitt og allt ef ég skyldi einhvertímann selja. Sirrý var með mér í bílnum og var alveg gáttuð á þessu hehe.

Siggeir | August 14, 2007 10:49 PM | Reply

Ég styð þig heilshugar í löngum bloggum Almar!

Styð þig líka í baráttu við lögguna, þeir eru svín og ekkert annað. En sennilega er þetta bara vísbending um að maður þurfi að fara að hægja á sér :)

Damma syss | August 15, 2007 10:28 AM | Reply

þetta er forboði! seldu bílinn eða við öll förum til helvítis

Damma syss | August 15, 2007 1:20 PM | Reply

eða fyrirboði þú ræður :)

Magga Stína | August 20, 2007 9:52 PM | Reply

Two days!!!:D:D Jeijj

thelma | August 21, 2007 3:05 PM | Reply

léilegt !

Leave a comment

Google Search

March 2011

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Myndirnar

Boston_067.jpg
Boston_068.JPG
Boston_069.jpg
EPSN4523.JPG
Boston_070.JPG
EPSN4456.JPG
Mynd_022.jpg
EPSN4200.JPG

Recent Entries

  • Heim sæta heim
  • Day 43
  • T minus 500 hours
  • Hæ hó ...
  • Noregur
  • Hrollur Púnktur Kom
  • Varta í Nissa
  • Nöldurhornið
  • hrollarnir báðir fluttir
  • Akureyringur

Recent Comments

  • thelma: léilegt ! read more
  • Magga Stína: Two days!!!:D:D Jeijj read more
  • Damma syss: eða fyrirboði þú ræður :) read more
  • Damma syss: þetta er forboði! seldu bílinn eða við öll förum til read more
  • Siggeir: Ég styð þig heilshugar í löngum bloggum Almar! Styð þig read more
  • almar: Helvítis löggur .. það mætti halda að þeir séu í read more
  • batgirl: löggurnar hérna fyrir austan eru líka alveg kreizí..stoppuðu andreu vinkonu read more
  • almar: Já, ég veit... ég tapaði mér um stund :) read more
  • rúnar: almar.. þetta var lengsta blogg sem ég hef lesið. Lengra read more
  • anný: vá ég þarf nú bara að leggja mig eftir þetta read more

Search this blog

Powered by Movable Type 5.01

Admin Login      



Individual visits per day

Powered by Movable Type