Einsog Dire Straits sungu fyrir 100 árum eða svo. Ég veit ekki hvort þeir hafi verið að meina það sama og ég, en ég er að farast úr gervihnattasjónvarpsleysi. Það er örugglega ekkert mál að lifa af daginn fyrir þá sem eru ekki orðnir háðir því að ná Sky Digital , en eftir 10 ár í áskrift hjá þeim er ég ekki að meika það að vera diskslaus þessa stundina. Sérstaklega ekki á þessum dýrindis rauða frídegi sem kallas sumardagurinn fyrsti ... "may there be many more" :) Vandamálið er að það er svo mikið af háum húsum hérna í kring að ég næ ekki signali á diskinn á þeim stöðum sem vænlegt væri að hafa hann, næ samt merki á ýmsum stöðum, þannig að það er ekkert útilokað ennþá. Bara ekki spenntur að spurja leigusalana: má ég hafa diskinn þarna, í miðju blómabeði :), eða þarna sem þið labbið í garðinn ykkar? :) ... ég þarf eitthvað að finna útúr þessu. Núna er allt komið í rugl, allir þættirnir sem ég var inní, þarf að finna út hvar ég var og downloada það sem ég hef misst af hehe ... ég heyri það núna hvað þetta er mikil geðveiki. En ég er svosem ekkert sjónvarpslaus, er með rúv, skjá1, stöð2 og kristilegu stöðina, hún rúlar! En ég mun ekki geta kallað þetta heimili fyrr en ég næ sky og er búinn að fá mér finann sófa.
En nissafréttir næst. Ég tók mig til á sunnudaginn síðasta í þynnkuleysinu og þreif nissa, að utan sem og innan, henti öllu ruslinu úr honum og ryksugaði, strauk af mælaborðinu .. þar var farið að vaxa gras í moldarlaginu sem hafði myndast þar .. og sem dæmi um hvað er langt síðan ég lagaði síðast til í kvikyndinu, þá tók ég skólatöskuna mína inn, en hún hafði verið útí bíl síðan ég var í kvöldskóla í MH 2005 :) En einsog ég vissi þá má ekki þrífa svona gamlan bíl, bara við sjokkið myndaðist gat á vatnskassann í nissa, og núna lekur hann svona hálfum líter á dag
:( ... lekur bara á meðan bílinn er heitur ... þannig að ég þarf eiginlega að láta laga það ... best að hugsa sig tvisvar um áður en ég þríf bílin næst hehe, hann hangir heldég saman á drullunni.
Svo að atvinnubílstjórum og löggunni, það er kominn alvöru hasar í þetta mál, maður bíður bara spenntur eftir fréttunum. Sá sem mest á skilið thule er löggan sem sást á stöð2 í gær, sem hélt á táragasbrúsanum og labaði áfram eldrauður í framan og öskraði " GAS! GAS! GAS! GAS! GAS! GAS! " í hverju skrefi. Spurning um að finna þetta á visi og koma þessu hingað.
Vatnsberi: Auðvitað þarftu að styrkja þau sambönd sem eru þér hagkvæm. En þú hefur áþreifanlegan hag af því að vinna nú í samböndum sem hallar á.
... what ?


hingað hvert ? Það er ekkert þarna nema brotinn mynd !
Og hvenar ætlarðu að látta mig fá xp get ekki sett inn nýja færslu tölvulaus. EPIC FAIL
hehe samt geturu kommentað :) ... ég þarf að breyta videóinu aðeins, virkar sennilega bara í explorer. Enda er explorerinn bestur í heimi.
ég er ennþá að bíða eftir myndunum.. en til hamingju að hafa þrifið nissa.. :) stórt skref...
ég er kominn aftur...
ég þoldi ekki hroll leysið lengur en þetta, skil það samt ekki því það er aldrei neitt skemmtilegt að lesa hérna...
Hei kommon, þetta lag er yngra en þú :)
Ps. IE sökkar og þú veist það.
Síðustu 2 comment eru greinilega ekki gerð með IE, maður sér það því þau eru full af bulli! ;)
explorerinn er eitt af mörgum vélarbrögðum djöfulsins. spurðu bara huldu prest.
og þetta lag er yngra en þú.... ert þú ekki allveg að verða 100?
á ekkert að fara að koma með mánaðarlega pistilinn?