HROLLUR.COM
keyrir á nýju kerfi

 

  • Heim
  • Bloggið
  • Fréttirnar
  • Myndirnar
  • Linkarnir
  • Hafa samband
  • Upload
  • Hrollur.net

hrollarnir báðir fluttir

By Almar on February 11, 2009 9:05 PM | 9 Comments

Hrollur logo UKÉg splæsti í ódýra hýsingu handa hrollinum, því ég er alltaf að flytja og nenni ekki að hafa suðandi netþjón í herberginu hjá mér. Sú hýsing er í London en í gegnum íslenskt fyrirtæki. Mér fannst alveg tilvalið að styrkja vini okkar þarna í Bretlandi ;) ... og vænlegt að hafa hrollinn á netþjónabúi sem er örugglega knúið með kolabrennslu eða kjarnaorku. Þannig að hver músasmellur brennir kannski einum kolamola og styður þannig við "global warming" .. veitir ekki af að fá nokkrar gráður í plús hérna þessa dagana, kannski minna að skafa og svona hehe. Þó svo að þetta séu alveg topp netþjónar, þá er þetta frekar svifaseint finnst mér. Er mikið að pæla í að fá einhverja hýsingu frekar innanlands. Þó það hafi verið helvítis bras að flytja síðuna, eða gagnagrunninn, þá verður það lítið mál svona í annað skiptið og tekur enga stund.

TumalingurSvo er ég líka fluttur, kominn í B5, eða Bjarkarlund 5. Þar býr systir mín ásamt manninum sínum og hundinum Tuma. Mig hefði aldrei grunað hvað er gaman að svona hundum, hef alltaf bara búið með kisum, þær eru allt örðuvísi. Æðislegt hvað hann tekur alltaf vel á móti manni þegar maður kemur heim og svona.

no signalÉg var líka það heppinn að þau eru með gervihnattadisk, svo ég missi nú ekki af neinu í sjónvarpinu. Annars hefði ég verið vís með að troða disk einhversstaðar á kofann. Var að tengja í kvöld og get loksin tekið gleði mína á ný ;) ... reyndar þurfti ég að strengja kapalinn mjög svo ósmekklega eftir miðjum húsveggnum til að koma honum í herbergið mitt, það er ekkert rosalega flott á nýju húsinu, en kemur í ljós hvort maður taki hann eða reyni að ganga betur frá þessu.

Vinna, það er eitthvað minna. Maður er alltaf bara atvinnulaus, eða að skrifa doctorsritgerð einsog Georg Bjarnfreðarson kallaði það. Mér leiðist það reyndar ekkert, þó myndi ég nú frekar vilja vera í vinnu og eiga meiri pening, þarf að skoða það eitthvað nánar.Addi litli

Svo eignaðist ég lítinn frænda 2. Febrúar. Bróðir minn var að koma með sitt þriðja barn. Ég hef nú ekki hitt guttann enn þar sem hann fæddist og býr í bandaríkjunum, en mamma er farin út að kíkja á litla kallinn. Ég á von á að sjá hann um páskana, þegar þau koma til landsins.

Vatnsberi: Samskipti við stofnanir eða hið opinbera koma flatt upp á þig á einhvern hátt. Farðu þér hægt í að velja þér trúnaðarvini sérstaklega af hinu kyninu.

9 Comments

almar | February 15, 2009 10:24 PM | Reply

Það virðist vera eitthvað bögg í commentakerfinu, annað en að það nenni engin að commenta hér ;)
Stundum þarf fleiri en eina tilraun til senda inn.
Allt starfsfólk Hrollur Inc liggur yfir þessu dag og nótt, til að koma þessu í lag.

almar | February 19, 2009 4:27 PM | Reply

Ég er búinn að laga commentakerfið (og það hefur aldrei verið hraðvirkara), þannig að eina vandamálið núna er að enginn nennir að commenta ;)
Það er spamlookup fídus í þessu bloggkerfi sem var orðinn úreltur, var alltaf að fletta í gagnagrunni sem var ekki til og þessvegna kom bara "time-out" á þetta. ... fyrir þá sem vildu vita ;)

Birkir | February 24, 2009 12:11 PM | Reply

ætli maður verði ekki að commenta. þetta er farið að verða svolítið vandræðalegt hjá þér.
til hamingju með frænda þinn.
og nokkuð spennandi lýsing á biluninni á comment kerfinu, meira svona! :)

almar | February 25, 2009 4:34 PM | Reply

Haha, já takk fyrir commentið.

thelma | March 6, 2009 1:47 PM | Reply

humm.. hvar er króksara loggið?

thelma | March 6, 2009 1:47 PM | Reply

*bloggið??!!

almar | March 10, 2009 8:14 PM | Reply

Já króksarabloggið... ég er búinn að gleyma öllu sem gerðist á króknum, það er svo langt síðan ;)
Á nú myndir af því til að setja inn samt, þarf að fara gera eitthvað í þssu sko!

Birkir | March 13, 2009 11:38 AM | Reply

er svona brjálað að gera hjá þér í atvinnuleysinu að þú getur ekki bloggað nema annann til þriðja hvern mánuð? .... aumingi!!

almar | March 13, 2009 10:34 PM | Reply

haha rólegur! ;)
Já, þetta eru léleg afköst, viðurkenni það. Það er samt blogg í fæðingu núna, gengur eitthvað erfiðlega að ná því, ætla prófa sogklukku á það :D

Leave a comment

Google Search

March 2011

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Myndirnar

EPSN4373.JPG
mynd1_027.jpg
EPSN3720.JPG
EPSN4915.JPG
EPSN5039.JPG
Boston_045.JPG
Boston_055.JPG
EPSN4147.JPG

Recent Entries

  • Heim sæta heim
  • Day 43
  • T minus 500 hours
  • Hæ hó ...
  • Noregur
  • Hrollur Púnktur Kom
  • Varta í Nissa
  • Nöldurhornið
  • hrollarnir báðir fluttir
  • Akureyringur

Recent Comments

  • almar: haha rólegur! ;) Já, þetta eru léleg afköst, viðurkenni það. read more
  • Birkir: er svona brjálað að gera hjá þér í atvinnuleysinu að read more
  • almar: Já króksarabloggið... ég er búinn að gleyma öllu sem gerðist read more
  • thelma: *bloggið??!! read more
  • thelma: humm.. hvar er króksara loggið? read more
  • almar: Haha, já takk fyrir commentið. read more
  • Birkir: ætli maður verði ekki að commenta. þetta er farið að read more
  • almar: Ég er búinn að laga commentakerfið (og það hefur aldrei read more
  • almar: Það virðist vera eitthvað bögg í commentakerfinu, annað en að read more

Search this blog

Powered by Movable Type 5.01

Admin Login      



Individual visits per day

Powered by Movable Type