HROLLUR.COM
keyrir á nýju kerfi

 

  • Heim
  • Bloggið
  • Fréttirnar
  • Myndirnar
  • Linkarnir
  • Hafa samband
  • Upload
  • Hrollur.net

Hrollur Púnktur Kom

By Almar on April 28, 2009 11:04 PM | 2 Comments

logo1Gamli góði hrollalingurinn er kominn aftur í loftið eftir svoltið bras.  Það er enn fullt af böggum í kerfinu sem ég er enn að laga en allt í allt er þetta bara einsog var á gömlu síðunni nema nýrri kerfi og annað útlit.  Hýsingin er Íslensk en mjög hraðvirk og góð finnst mér.  Verst bara að það er mesta fjörið við að setja þetta upp, svo eru notin orðin minni á meðan facebook og svoleiðis síður eru til staðar.  En maður getur leikið sér eitthvað að þessu.

Ég nota enn Movable Type fyrir bloggið og Coppermine Photo Gallery fyrir myndirnar og er núna með nýjustu útgáfur af þeim, fullt af flottum fídusum sem hafa  bæst við.  Svo er ég enn að brasa í rss-parserum, mér finnst svo gaman að láta síðuna hjá mér stela efni í rauntíma af öðrum síðum einsog sést hérna í "Fréttirnar" flipinn hér að ofan.  En þetta er tekið af mbl, vísi, rúv og dv og er aldrei eldra en 2 tíma gamalt.  Það er hægt að sjá aldurinn á fréttunum í skoða skyndiminni takkanum, og líka hægt að tæma skyndiminnið, en þá skrifar síðan þetta uppá nýtt.  Ég setti 2 tíma skyndiminni á þetta til að hafa þetta hraðvirkara og að valda minna álagi á hina þjónana sem efnið er tekið af.  Ég nota þessar síður alltaf sjálfur þegar ég vill skoða hvað er að gerast.  Síðan sýnir MBL og VÍSI en það er takki þarna efst til að breyta yfir í RÚV og DV.

Linkarnir eru bara á teikniborðinu, ekkert af viti komið þar inn.  Setti reyndar þar inn 3 skemmtileg script.  Eitt þeirra sýnir displaymyndina af facebook, nafnið og status og uppfærist sjálfkrafa þegar einhverju er breytt.  Annað sýnir MSN stöðu, hvort maður sé online eða ekki og hvaða nikk maður er að nota, meiraðsegja hægt að smella á það og byrja spjalla án þess að vera með msn í tölvunni eða msn account.  Þriðja sýnir stöðuna á skype, hvort maður sé online eða ekki, ég nota skype eiginlega ekki neitt, það kannski kemur að því, svo ég geti brúkað flottu skype-símstöðina mína.

Næsta verkefni verður að tengja bloggkerfið við facebook, það er til plugin fyrir það sem verður gaman að sjá hvernig virkar.

Hrollur.net er enn uppi, á eftir að ákveða hvað ég geri við hann. Bloggin eru núna læst þannig það er ekki hægt að commenta þar, en ég flutti þau öll hingað svo heimurinn gæti notið lengur ;)

Vatnsberi: Þú getur aðeins sjálfum þér um kennt ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð. Annars áttu á hættu kringumstæður sem þú ræður ekki við.     - haha so true

2 Comments

anný | May 10, 2009 9:01 PM | Reply

flottur hrollur.com kominn aftur.. var reyndar ekki að fatta hvar maður átti að commenta.. vanalega alltaf neðst.. en svona kemur þú alltaf á óvart... :) væri nú gaman að sjá eh myndir hérna aftur sem teknar voru í breiðholtinu...:) gömlu góðu tímarnir...:)

Almar | May 11, 2009 4:13 PM | Reply

Hehe loksins kemur einhver í heimsókn á nýja hrollinn ;)
Já, þetta er svona nýtt á nálinni að hafa þetta efst uppi, það er í tísku í dag.

Ég fer að moka myndunum inn, ætlaði einmitt að gera það þegar hrollurinn kæmist í gang.
Hehe gömlu góðu tímarnir.

Leave a comment

Google Search

March 2011

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Myndirnar

EPSN4644.JPG
Mynd_021.jpg
mynd1_024.jpg
EPSN4058.JPG
EPSN5094.JPG
EPSN5022.JPG
EPSN3709.JPG
EPSN5057.JPG

Recent Entries

  • Heim sæta heim
  • Day 43
  • T minus 500 hours
  • Hæ hó ...
  • Noregur
  • Hrollur Púnktur Kom
  • Varta í Nissa
  • Nöldurhornið
  • hrollarnir báðir fluttir
  • Akureyringur

Recent Comments

  • Almar: Hehe loksins kemur einhver í heimsókn á nýja hrollinn ;) read more
  • anný: flottur hrollur.com kominn aftur.. var reyndar ekki að fatta hvar read more

Search this blog

Powered by Movable Type 5.01

Admin Login      



Individual visits per day

Powered by Movable Type