Ég er mikið að hugsa um að skella mér til Noregs, sýnist vera margt vitlausara en það. Ef það er ekki rétti tíminn núna þá held ég að hann sé aldrei. Það er allavega svo margt sem mælir með því að fara. Fyrst og fremst er það auðvitað gengismunurinn, held að það væri geggjað ef maður fengi vinnu þarna úti að borga íslensku reikningana með norsku krónunni, greiðslubyrgði sem vanalega væri svona 50- 70 þúsund myndi finnast vera bara 25 - 35 þúsund, það munar alveg um það. Og launin eru víst ekkert slæm þarna, ef maður finndi nú eitthvað sem maður gæti gert, svona án þess að tala málið. Svo er maður frekar frjáls til að fara, ekki að leigja neina íbúð, auðvitað engin vinna og engar hvaðir sem halda manni hérna. Svo á maður alveg eftir að skella sér í svona ævintýri, hef aldrei búið erlendis, bara farið í stuttar skemmtiferðir.
Eini gallinn er kannski sá að ef maður fær ekki vinnu fljótlega þá er erfitt að lifa þarna á atvinnuleysisbótunum, því þær eru miðaðar við gengi evrópska seðlabankans á íslensku krónunni. Þannig ef maður fær c.a. 130 þúsund hér, þá virkar það örugglega einsog svona 70 þúsund þarna úti, sem er nú ekki mikill peningur. Eða ég vona að það sé allavega svo "gott", fór nefnilega áðan á heimasíðu evrópska seðlabankans, þar voru öll gengi uppfærð reglulega. Neðst í listanum var greyið íslenski fáninn og stóð bara "Icelandic krona - The last rate was published on 3 Dec 2008" :o en maður gat hvergi séð hvað það var. En það má þá alltaf skella sér heim aftur ef þetta gengur ekki, það er líka miðað við að maður fái 3 mánuði til atvinnuleitar í erlendu landi, maður ætti að halda það út.
Ég valdi Noreg sérstaklega og Stavanger því ég á ættingja þar sem myndu örugglega hjálpa mér að komast inní kerfið þarna, finna mér íbúð og jafnvel leiðbeiningar með hvar sé best að sækja um og svona. Á samt eftir að heyra í þeim með það. Held að þetta væri svoltið erfitt að fara svona út ef maður hefði enga aðstoð við þetta, eða mér finnst það eiginlega.
Hvað á maður samt að gera við Nissa litla á meðan, það er stóra spurningin? Það væri nú leiðinlegt að henda honum eða selja fyrir slikk, svo kæmi maður heim eftir 3 mánuði blankur og bíllaus. Svo á ég líka enn búslóð í geymslu í Reykjavík sem ég þarf að finna eitthvað útúr, meira vesenið með þetta drasl sem fylgir manni ;)
En allavega ef allt gengur eftir þá fer maður sennilega út í byrjun júlí. Ég sá það á netinu að það kostar svipað að fljúga beint frá Akureyri -> Kaupmannahöfn -> Stavanger , einsog að koma sér suður og fara frá Keflavík -> Stavanger, þannig ég held að það sé pottþétt málið að fá smá Köben á þetta í leiðinni, geggjað stuð þar allavega síðast fannst mér.
Vatnsberi: Því lengur sem þú slærð hlutunum á frest því erfiðara er að koma sér að verki. Gefðu þér tíma til að njóta fegurðar náttúrunnar með þínum nánustu.

Ég skal passa Nissa fyrir þig Almar, ég átti nú einu sinni einn sjálfur, ætti að ráða við það :)
Kíldu á þetta kall.
Great text and nice site.