nei kannski ekki alveg. Það eru samt alltaf sömu vonbrigðin með sumarblíðuna þegar kemur svona "hitabylgja" um vorið þar sem hitinn fer uppí 20 stig, þá heldur maður alltaf að það sé bara rétt byrjunin á sumrinu, þetta verði enn betra. En svo er hitinn bara í kringum 10 gráðurnar og aldrei sól ;)
Það verður kannski betra veður fyrir mig í Noregi, en ég hef ákveðið að skella mér þangað, meiraðsegja kominn með flugmiðana í hönd, þannig það verður ekki aftur snúið núna.
.. tja nema maður skyldi fá góða vinnu á Íslandi, tel það samt ekki líklegt. Ég var í miklu basli að velja dagsetningu til að fara, mér fannst ég þurfa safna smá pening í gjaldeyri, vera búinn að ganga frá nissa einhversstaðar og dótinu mínu, fá gistingu í köben yfir helgi, ná sumari á Íslandi en ekki missa af því úti heldur og fá ódýrt flugfar. Á endanum skellti ég mér á föstudaginn 14. ágúst, þá er brottför klukkan 14:35 af Akureyrarflugvelli, akkúrat 3 tímum seinna er lending í Kaupmannahöfn, ef rellan kemst alla leið. Svo er næsta flug ekki fyrr en mánudaginn 17. ágúst til Stavanger og tekur ekki nema 1 klukkutíma og 15 mínútur. Lending 15:30 að norskum tíma.
Svo er maður svo mikill nörd að ég gerði excel línurit yfir verð á flugi+tengiflug til að hjálpa mér að velja, ætti kannski ekki að segja frá því, en víst ég er búinn að því ætla ég að láta það fylgja
með hér - Ég veit maður þarf að leita sér hjálpar við þessu :).
Svo á bara eftir að koma í ljós hvort einhver vilji ráða mig í vinnu þarna úti, ég kann ekki eitt orð í norsku, þannig það verður kannski vandamál. Það er 3% atvinnuleysi í noregi, það er allavega minna en 9% hérna. En ef þetta gengur ekki eftir þá kemur maður bara heim í nóvember með skottið á milli lappanna hehe - En búinn að fá þá góða utanlandsferð.
Vatnsberi: Þú gætir komist yfir upplýsingar sem koma sér vel. Ekki aðeins veistu nákvæmlega hvað þú vilt heldur veistu líka hvernig þú átt að fá því framgengt.

hahahaha exel lúði, en hva verðuru þá bara launalaus í 3 mánuði ef þú færð enga vinnu í noregi?
hehe, já alltaf gaman í excel.
Maður heldur "laununum" í 3 mánuði úti, ef maður finnur ekki vinnu á þeim tíma verður maður annaðhvort "launalaus" eða kemur heim og heldur áfram á "laununum" hér ;)
ahhh skil en sniðugt, maður getur bara skroppið á launum til útlanda, nett það hehe
Great text and nice blog.