Make your own Countdown Clocks
Það styttist og styttist í ferðina ógurlegu hjá mér. Núna eru akkúrat 500 klukkutímar, eða 30079 mínútur, eða 1804753 sekúntur í brottför, til að vera svoltið nákvæmur ;)
Spennan er farin að magnast hjá manni hvernig þetta allt verður. Hlakkar óneitanlega líka til að kíkja við í köben og skralla smá þar með henni Magnúsínu.
Annars er nú lítið af þessu að segja fyrr en eftirá, þannig kannski mun maður blogga um ferðina þegar út er komið, það er að segja ef það eru einhverjir lesendur eftir sem eru ekki bara á facebook ;) Ætla líka að vera ofurduglegur með myndavélina.
En aðalmálið í dag er verslunarmannahelgin, það er nú oftast svoltið stuð þá. Planið var að reyna komast allavega á Sálina í Sjallanum á sunnudeginum og jafnvel ef ég verð í feiknarstuði að kíkja á Siglufjörð á laugardagskvöldinu, hitta gamlar BT-mýs og sjá síldarævintýrið.
Ég man ekki eftir því að hafa komið til Siglufjarðar, en er samt alveg viss um að það hefur einhverntíman gerst, þó það séu kannski 25 ár síðan :O Vona bara að vegurinn þangað sé nissa-vænn, að þetta sé ekki mjög holóttur malarvegur, því þá dettur örugglega eitthvað undan nissa greyinu. Það er frekar stutt síðan ég fór til Ólafsfjarðar, það var bara núna í sumar og veit að það er malbik alla leiðina og EINSTEFNUGÖNG sem ég hélt ég myndi festast inní, en í þeirri ferð fórum við á sveitabæ aðeins innfyrir fjörðinn og það var bara malarvegur, mér skyldist að þetta væri leiðin til sigló. Svo getur maður jú farið "hina" leiðina, gegnum varmahlíð, kemur allt í ljós. En ætli föstudagurinn verði ekki bara rólegur, sé ekki fram á annað, hvað þá helgin sem er núna að byrja. Það er svosem ekkert vitlaust að taka sér smá pásu og safna þreki fyrir versló. En ég birti það með fyrirvara, allt getur enn gerst ;)
Stjörnuspáin mín í dag minnir óneitanlega á umræðuna sem ég lenti í í gær, þar var kvartað var yfir því að atvinnulausir vildu ekki hvaða störf sem er, og alhæft það yfir þá alla.
Ég er nokkuð sammála manninum sem kom á ruv í gær og sagði að það væru komnir fordómar í landinu gagnvart atvinnulausum, þeir séu allir að vinna svart og misnota kerfið. Neiti svo að vinna þær vinnur sem býðst. - Það allavega virðist sem fréttastofur séu að mála þannig mynd af þeim.
Vatnsberi: Enginn velur það sem hann vill ekki - vitandi vits. Slakaðu á á meðan þú safnar upplýsingum og reyndu að einblína ekki á að fá vilja þínum framgengt.


Halló halló!! ert þú hættir í blogginu?? Þá eru allir hættir damm it