HROLLUR.COM
Heim sæta heim
Greyið Noregur missir nú mikið þegar ég fer heim hehe, Ég vill allavega meina það.  Eftir að hafa sent um 40 umsóknir fékk ég einungis svör frá 2 aðilum.  Báðir sögðu mér að ég yrði að kunna norsku til að fá vinnuna.  Komst ekki í eitt einasta viðtal.  Ég hélt að það yrði bara "pís of keik" að fá vinnu þarna, og fyrsta mánuðinn var ég ekkert að sækja um nema nokkrar vinnur, því ég vildi ekki gera hvað sem er og gæti alveg valið úr, en svo virðist ekki vera.  Ég get eiginlega ekki kennt umsóknunum sjálfum um áhugaleysi þeirra sem ráða, því ég notaði mörg mismunandi form, stundum fyllti maður út form á netinu, öðrum stöðum var notað form sem var gert fyrir mig á vinnumálastofnun í Noregi og svo sendi ég einnig mína eigin ferilskrá og umsóknir.  Undir lokin var ég meiraðsegja farinn að ýkja gróflega kunnáttur og reynslu, en enn komu engin svör.  Eftir að hafa kvartað yfir þessu hjá NAV (norsku vinnumálastofnuninni) þá segja þau mér að það sé allt fullt af útlendingum núna, sem kunni ekki málið og séu að sækja um þessar sömu vinnur og ég, og norðmenn séu ekkert alltof hrifnir af þeim.  En ég hef samt ekkert gefist upp.  Það er fínt að fá að fara heim núna fyrir jólin, er orðinn ótrúlega þreyttur á þessu og langar í pásu. Maður hellir sér svo í þetta aftur eftir áramót.  Veit ekki hvort ég fái að fara svona aftur í 3 mánuði, eða hvort ég sæki bara um á fullu og reyni að fá eitthvað án þess að geta farið í viðtal.  Allavega er ég alveg æstur í að komast í vinnu erlendis.
Eina leiðinlega við að koma heim efitr þessa 100 daga reisu verður að sjá Nissa greyið allan lemstraðann á flugvellinum.  Ég hélt að maður væri laus við svona á Akureyri, það er ekki nema ár síðan það var síðast brotist inní hann í Reykjavík og öllum græjunum mínum stolið, núna var ekkert í honum til að stela, þannig það var reynt að stela bílnum sjálfum.  Bæði með því að troða skrúfjárni í svissinn, og svo klippa á alla vírana og reynt að tengja framhjá.  Ég var nú samt að vona að ég kæmi honum í gang og gæti notað hann þó það væri ekki nema í 2-3 mánuði, það á eftir að koma í ljós.  Þjófarnir komu honum greinilega ekki í gang, þannig það það gæti verið eitthvað skemmt í honum.  Innréttingin er svo í rúst og brotin rúða.  Og að sjálfsögðu reynir löggan ekki einusinni að skoða þetta, hefur engan áhuga á því, einsog í fyrra skiptið.  En það þýðir ekkert að vera velta sér uppúr því.
Á mánudagsmorgun 23.nóv eru flugin mín, maður neyðist til að fara í allavega 2 flugvélar.  Samt hefur gengið svo vel í síðustu flugferðum að ég held ég sé svosem ekkert smeikur við þetta lengur.  Ég fer með SAS og millilendi í Oslo, stoppa þar í 50 mín, svo er það beint til Keflavíkur og lending þar klukkan 12 að hádegi.  Svo hugðist ég vera nánast í heila viku í Reykjavík, kíkja á djammið og svona :)  það verður ekki slæmt, get eiginlega ekki beðið! :)
Vatnsberi: Hjálpin sem vatnsberinn vildi ekki áður, býðst á ný og gefur honum tækifæri til þess að fara öðruvísi að núna. Látið það eftir ykkur að njóta hringiðunnar.
Day 43
... Almar is in the diaryroom. Hehe þenan djók skilur væntanlega enginn nema systir mín, en ég get alveg lofað því að hann er alveg geeeeegjaður!! ;)
Þá er maður búinn að vera 43 daga í útlöndum, ekki kominn með vinnu, en að „vinnna" í því. Ég las einhversstaðar frásögn frá 2 stelpum sem fóru til Noregs í atvinnuleit og sögðu að það vildi enginn ráða þær því þær kynnu ekki málið, önnur fór heim en hin rétt komst í vinnu áður en hennar 3 mánuðir frá vinnumálastofnun voru liðnir. Ég held ég sé alveg sammála því. Fyrst þegar ég kom hingað sá ég um 30 nýjar atvinnuauglýsingar á dag og hugsaði að þetta yrði nú ekki mikið mál, svo fór að draga úr þeim. Það er samt hellingur af nýjum störfum í boði hérna á þessum helstu atvinnuleysissíðum, en þar er helst hjúkrunarfræðingar, verkfræðingar, kennarar og önnur störf sem krefjast sérþekkingar. Það koma nokkur störf sem venjulegur leikmaður ætti að ráða við en þá er oftast krafist norskukunnátu, bæði munnleg og skrifleg. Mér þótti það svoltið skrítið fyrir skúringarstarf sem ég sá auglýst í vikunni.
Ég hef samt náð að sækja um nokkrar vinnur, þar á meðal bilaflutningamaður hjá Hertz bílaleigunni (starf sem mig langar mikið í), næturvörður á hóteli hér í bæ (veit ekki hvernig það gengi), lagerstarfsmaður (líst vel á það), lagerstarfsmaður með lyftarapróf sem sendir vörur heim (líst líka vel á það), starfsmaður í tæknideild sjúkrahússins hérna, deild sem þjónustar tölvur, sjónvörp og síma. Það hefði verið fín vinna, en það er sú eina sem hefur svarað mér. Hringdi í mig kona á fimmtudaginn og sagði „hallú, er de Almagr Ögrn" hehe og ég sagði „ja ja" þá sagði hún fullt af einhverju sem ég ekki skildi, sem ég tel mig eftirá hafa kannski skilið hefði hún sagt hlutina hægar. En jæja, ég spurði hvort hún væri til í að tala ensku og það var ekkert mál. En þá sagði hún strax, víst þú skilur ekki norsku þá tekur sig ekki fyrir mig að koma í viðtal, því það væri stefna hjá sjúkrahúsinu að allir töluðu og skildu norskuna og því gæti ég ekki fengið vinnu. Það yrði of mikið vesen að kenna mér og koma mér inní hlutina á ensku. Og bauð mér að lokum að endilega sækja bara um aftur ... þegar ég væri búinn að læra norskuna. Þetta er kannski alveg skiljanlegt, en bömmer því þetta hefði getað orðið skemmtileg vinna. Norðmenn eru jafngóðir og Íslendingar í ensku finnst mér, ég held að í svona tæknideild þá ættu þeir flestir auðvelt að segja mér til á ensku, en maður verður víst að sætta sig bara við þetta og fara á NORSKUnámskeið!
Annars fer nú vel um mann hérna í Stavanger, ég bý hjá Össa bróðir mömmu, alveg á besta stað í miðbænum. Canal+ , kapalsjónvarp og internet á heimilinu, hvað þarf maður meira :) Alveg ótrúlegt að hann nenni að hafa mig hérna hangandi alla daga, þar sem ég held til í stofunni með annað augað á sjónvarpinu og hitt á tölvunni. Hann reddaði mér reyndar hjóli, sem ég er búinn að nota alveg helling. Það er mjög gaman að hjóla hérna í kring, mikið af hjólastígum og uppáhaldsleiðin mín er að hjóla á göngustíg í kringum Mosvatnet sem er hérna rétt hjá. Það er reyndar svoltið mikil traffík á göngustígnum þar, fólk að labba, skokka og hjóla. Þetta er stundum hálfgert öngþveiti. Ég hef sennilega farið svona 10x, og finn strax að þolið sem var MJÖG lélegt í fyrstu ferðinni er búið að margfaldast núna, og maður blæs ekki úr nös af 10 Km eða svo :)
Það var ótrúlega fínt að lenda hérna í Noregi 17. Ágúst, eftir góða djammhelgi með Möggu í Kaupmannahöfn. Amma, Afi og Össi tóku á móti mér á vellinum og var mjög fínt að hafa þau hérna líka. Annars væri ég líklega ekki búinn að ferðast og sjá alveg helling af Noregi. Við keyrðum uppá Halsnøy þar sem Elva systir mömmu, maðurinn hennar og kötturinn Missy búa og vorum þar í heila viku. Það voru 2 ferjur, risabrýr og jarðgöng á leiðinni, enda er þetta eyja. Mjög skemmtileg leið að fara. Eyjan mjög róleg og góð, og örugglega fínt að búa þar. Svo erum við líka búin að fara á fullt að stöðum sem ég kann ekki að telja upp, en maður er búinn að vera einsog alvöru túristi, fín tilbreyting frá spánarferðum þar sem maður sá ekkert meira en barinn ... þó það sé alveg fínt líka :)  Talandi um bari þá virðist næturlífið hérna í stavanger vera nokkuð fjörugt, ég hef samt ekki farið neitt á djammið enþá, og búinn að sleppa úr mánuð! Veit ekki hvenar eða hvort það hefur gerst áður, en er ekki frá því að það sé gott fyrir heilsuna ... en ég ætla samt ekkert að hætta djamma :)
Ég er alltaf með gamla símanúmerið mitt í gangi, þó ég noti ekkert símann, sé hvort ég missi af einhverjum símtölum og svona, annars er nýja númerið +47 988 49204, númer sem ég man aldrei og þarf alltaf að fletta því upp. Það er ekkert rosalega dýrt að hringja í mig frá Íslandi, ódýrast fyrir þá sem eru með frelsi hjá símanum og hringja í 1100 47 988 49204, þá kostar mínútan 24 krónur í stað 35 króna, dýrast að hringja úr gsm áskrift sem er svoltið sérstakt, en þetta er allt hér. SMSið er svo á 20 krónur, gjöf en ekki gjald! :) Það þarf samt að skrá sig í þessa "11" þjónustu.
Netfangið almar(hjá)internet.is skoða ég líka daglega í viðbót við að vera alltaf á facebook og msn, þannig maður er ekkert sambandslaus. Er meiraðssegja búinn að fá mér norskt 3G sim-kort í tölvuna mína svo ég geti verið á netinu hvar sem er, sem mér finnst vera voða mikið sport.
Má svo ekki gleyma að minnast á nýja norska debetkortið mitt :) þó það sé eiginlega ekkert inná því ... samt gaman að vera búinn að fá svoleiðis.
Jæja, best að enda þetta blogg, kominn yfir 1000 orð, þekki enga sem geta lesið svona langt án þess að sofna. Þannig ég kveð að sinni.
Vatnsberi: Þú gætir fengið óvænta gjöf eða glaðning í dag. Vertu því ekki að dragnast þetta áfram heldur hristu af þér slenið og komdu þér að verki.
T minus 500 hours
<OBJECT classid="clsid:D27CDB6E-AE6D-11cf-96B8-444553540000"codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"WIDTH="300" HEIGHT="180" id="myMovieName"><PARAM NAME=flashvars VALUE="maturity=1250259600000:16711680:10053171:6710988:source.pyzam.com/app_res/mdp_cd/300x180/9/b/mqlightshow.jpg:Brottfor032fra032Islandi"><PARAM NAME=movie VALUE="http://stuff.freeflashtoys.com/swf/cd_custom.swf"><PARAM NAME=quality VALUE=high><EMBED src="http://stuff.freeflashtoys.com/swf/cd_custom.swf?maturity=1250259600000:16711680:10053171:6710988:source.pyzam.com/app_res/mdp_cd/300x180/9/b/mqlightshow.jpg:Brottfor032fra032Islandi" quality=high WIDTH="300" HEIGHT="180" wmode="transparent" NAME="myMovieName" ALIGN="" TYPE="application/x-shockwave-flash"PLUGINSPAGE="http://www.macromedia.com/go/getflashplayer"></EMBED></OBJECT>
Make your own Countdown Clocks
Það styttist og styttist í ferðina ógurlegu hjá mér.  Núna eru akkúrat 500 klukkutímar, eða 30079 mínútur, eða 1804753 sekúntur í brottför, til að vera svoltið nákvæmur ;)
Spennan er farin að magnast hjá manni hvernig þetta allt verður.  Hlakkar óneitanlega líka til að kíkja við í köben og skralla smá þar með henni Magnúsínu.
Annars er nú lítið af þessu að segja fyrr en eftirá, þannig kannski mun maður blogga um ferðina þegar út er komið, það er að segja ef það eru einhverjir lesendur eftir sem eru ekki bara á facebook ;) Ætla líka að vera ofurduglegur með myndavélina.
En aðalmálið í dag er verslunarmannahelgin, það er nú oftast svoltið stuð þá.  Planið var að reyna komast allavega á Sálina í Sjallanum á sunnudeginum og jafnvel ef ég verð í feiknarstuði að kíkja á Siglufjörð á laugardagskvöldinu, hitta gamlar BT-mýs og sjá síldarævintýrið.
Ég man ekki eftir því að hafa komið til Siglufjarðar, en er samt alveg viss um að það hefur einhverntíman gerst, þó það séu kannski 25 ár síðan :O  Vona bara að vegurinn þangað sé nissa-vænn, að þetta sé ekki mjög holóttur malarvegur, því þá dettur örugglega eitthvað undan nissa greyinu.  Það er frekar stutt síðan ég fór til Ólafsfjarðar, það var bara núna í sumar og veit að það er malbik alla leiðina og EINSTEFNUGÖNG sem ég hélt ég myndi festast inní, en í þeirri ferð fórum við á sveitabæ aðeins innfyrir fjörðinn og það var bara malarvegur, mér skyldist að þetta væri leiðin til sigló.  Svo getur maður jú farið "hina" leiðina, gegnum varmahlíð, kemur allt í ljós.  En ætli föstudagurinn verði ekki bara rólegur, sé ekki fram á annað, hvað þá helgin sem er núna að byrja.  Það er svosem ekkert vitlaust að taka sér smá pásu og safna þreki fyrir versló.  En ég birti það með fyrirvara, allt getur enn gerst ;)
Stjörnuspáin mín í dag minnir óneitanlega á umræðuna sem ég lenti í í gær, þar var kvartað var yfir því að atvinnulausir vildu ekki hvaða störf sem er, og alhæft það yfir þá alla.
Ég er nokkuð sammála manninum sem kom á ruv í gær og sagði að það væru komnir fordómar í landinu gagnvart atvinnulausum, þeir séu allir að vinna svart og misnota kerfið.  Neiti svo að vinna þær vinnur sem býðst. - Það allavega virðist sem fréttastofur séu að mála þannig mynd af þeim.
Vatnsberi: Enginn velur það sem hann vill ekki - vitandi vits. Slakaðu á á meðan þú safnar upplýsingum og reyndu að einblína ekki á að fá vilja þínum framgengt.
Hæ hó ...
nei kannski ekki alveg.  Það eru samt alltaf sömu vonbrigðin með sumarblíðuna þegar kemur svona "hitabylgja" um vorið þar sem hitinn fer uppí 20 stig, þá heldur maður alltaf að það sé bara rétt byrjunin á sumrinu, þetta verði enn betra.  En svo er hitinn bara í kringum 10 gráðurnar og aldrei sól ;)
Það verður kannski betra veður fyrir mig í Noregi, en ég hef ákveðið að skella mér þangað, meiraðsegja kominn með flugmiðana í hönd, þannig það verður ekki aftur snúið núna.
.. tja nema maður skyldi fá góða vinnu á Íslandi, tel það samt ekki líklegt.  Ég var í miklu basli að velja dagsetningu til að fara, mér fannst ég þurfa safna smá pening í gjaldeyri, vera búinn að ganga frá nissa einhversstaðar og dótinu mínu, fá gistingu í köben yfir helgi, ná sumari á Íslandi en ekki missa af því úti heldur og fá ódýrt flugfar.  Á endanum skellti ég mér á föstudaginn 14. ágúst, þá er brottför klukkan 14:35 af Akureyrarflugvelli, akkúrat 3 tímum seinna er lending í Kaupmannahöfn, ef rellan kemst alla leið.  Svo er næsta flug ekki fyrr en mánudaginn 17. ágúst til Stavanger og tekur ekki nema 1 klukkutíma og 15 mínútur.  Lending 15:30 að norskum tíma.
Svo er maður svo mikill nörd að ég gerði excel línurit yfir verð á flugi+tengiflug til að hjálpa mér að velja, ætti kannski ekki að segja frá því, en víst ég er búinn að því ætla ég að láta það fylgja
með hér - Ég veit maður þarf að leita sér hjálpar við þessu :).
Svo á bara eftir að koma í ljós hvort einhver vilji ráða mig í vinnu þarna úti, ég kann ekki eitt orð í norsku, þannig það verður kannski vandamál.  Það er 3% atvinnuleysi í noregi, það er allavega minna en 9% hérna.  En ef þetta gengur ekki eftir þá kemur maður bara heim í nóvember með skottið á milli lappanna hehe - En búinn að fá þá góða utanlandsferð.
Vatnsberi: Þú gætir komist yfir upplýsingar sem koma sér vel. Ekki aðeins veistu nákvæmlega hvað þú vilt heldur veistu líka hvernig þú átt að fá því framgengt.
Noregur
Ég er mikið að hugsa um að skella mér til Noregs, sýnist vera margt vitlausara en það.  Ef það er ekki rétti tíminn núna þá held ég að hann sé aldrei.  Það er allavega svo margt sem mælir með því að fara.  Fyrst og fremst er það auðvitað gengismunurinn, held að það væri geggjað ef maður fengi vinnu þarna úti að borga íslensku reikningana með norsku krónunni, greiðslubyrgði sem vanalega væri svona 50- 70 þúsund myndi finnast vera bara 25 - 35 þúsund, það munar alveg um það.  Og launin eru víst ekkert slæm þarna, ef maður finndi nú eitthvað sem maður gæti gert, svona án þess að tala málið.  Svo er maður frekar frjáls til að fara, ekki að leigja neina íbúð, auðvitað engin vinna og engar hvaðir sem halda manni hérna. Svo á maður alveg eftir að skella sér í svona ævintýri, hef aldrei búið erlendis, bara farið í stuttar skemmtiferðir.
Eini gallinn er kannski sá að ef maður fær ekki vinnu fljótlega þá er erfitt að lifa þarna á atvinnuleysisbótunum, því þær eru miðaðar við gengi evrópska seðlabankans á íslensku krónunni.  Þannig ef maður fær c.a. 130 þúsund hér, þá virkar það örugglega einsog svona 70 þúsund þarna úti, sem er nú ekki mikill peningur.  Eða ég vona að það sé allavega svo "gott", fór nefnilega áðan á heimasíðu evrópska seðlabankans, þar voru öll gengi uppfærð reglulega.  Neðst í listanum var greyið íslenski fáninn og stóð bara "Icelandic krona - The last rate was published on 3 Dec 2008" :o  en maður gat hvergi séð hvað það var.  En það má þá alltaf skella sér heim aftur ef þetta gengur ekki, það er líka miðað við að maður fái 3 mánuði til atvinnuleitar í erlendu landi, maður ætti að halda það út.
Ég valdi Noreg sérstaklega og Stavanger því ég á ættingja þar sem myndu örugglega hjálpa mér að komast inní kerfið þarna, finna mér íbúð og jafnvel leiðbeiningar með hvar sé best að sækja um og svona.  Á samt eftir að heyra í þeim með það.  Held að þetta væri svoltið erfitt að fara svona út ef maður hefði enga aðstoð við þetta, eða mér finnst það eiginlega.
Hvað á maður samt að gera við Nissa litla á meðan, það er stóra spurningin?  Það væri nú leiðinlegt að henda honum eða selja fyrir slikk, svo kæmi maður heim eftir 3 mánuði blankur og bíllaus. Svo á ég líka enn búslóð í geymslu í Reykjavík sem ég þarf að finna eitthvað útúr, meira vesenið með þetta drasl sem fylgir manni ;)
En allavega ef allt gengur eftir þá fer maður sennilega út í byrjun júlí. Ég sá það á netinu að það kostar svipað að fljúga beint frá Akureyri -> Kaupmannahöfn -> Stavanger , einsog að koma sér suður og fara frá Keflavík -> Stavanger, þannig ég held að það sé pottþétt málið að fá smá Köben á þetta í leiðinni, geggjað stuð þar allavega síðast fannst mér.
Vatnsberi: Því lengur sem þú slærð hlutunum á frest því erfiðara er að koma sér að verki. Gefðu þér tíma til að njóta fegurðar náttúrunnar með þínum nánustu.
Hrollur Púnktur Kom
Gamli góði hrollalingurinn er kominn aftur í loftið eftir svoltið bras.  Það er enn fullt af böggum í kerfinu sem ég er enn að laga en allt í allt er þetta bara einsog var á gömlu síðunni nema nýrri kerfi og annað útlit.  Hýsingin er Íslensk en mjög hraðvirk og góð finnst mér.  Verst bara að það er mesta fjörið við að setja þetta upp, svo eru notin orðin minni á meðan facebook og svoleiðis síður eru til staðar.  En maður getur leikið sér eitthvað að þessu.
Ég nota enn Movable Type fyrir bloggið og Coppermine Photo Gallery fyrir myndirnar og er núna með nýjustu útgáfur af þeim, fullt af flottum fídusum sem hafa  bæst við.  Svo er ég enn að brasa í rss-parserum, mér finnst svo gaman að láta síðuna hjá mér stela efni í rauntíma af öðrum síðum einsog sést hérna í "Fréttirnar" flipinn hér að ofan.  En þetta er tekið af mbl, vísi, rúv og dv og er aldrei eldra en 2 tíma gamalt.  Það er hægt að sjá aldurinn á fréttunum í skoða skyndiminni takkanum, og líka hægt að tæma skyndiminnið, en þá skrifar síðan þetta uppá nýtt.  Ég setti 2 tíma skyndiminni á þetta til að hafa þetta hraðvirkara og að valda minna álagi á hina þjónana sem efnið er tekið af.  Ég nota þessar síður alltaf sjálfur þegar ég vill skoða hvað er að gerast.  Síðan sýnir MBL og VÍSI en það er takki þarna efst til að breyta yfir í RÚV og DV.
Linkarnir eru bara á teikniborðinu, ekkert af viti komið þar inn.  Setti reyndar þar inn 3 skemmtileg script.  Eitt þeirra sýnir displaymyndina af facebook, nafnið og status og uppfærist sjálfkrafa þegar einhverju er breytt.  Annað sýnir MSN stöðu, hvort maður sé online eða ekki og hvaða nikk maður er að nota, meiraðsegja hægt að smella á það og byrja spjalla án þess að vera með msn í tölvunni eða msn account.  Þriðja sýnir stöðuna á skype, hvort maður sé online eða ekki, ég nota skype eiginlega ekki neitt, það kannski kemur að því, svo ég geti brúkað flottu skype-símstöðina mína.
Næsta verkefni verður að tengja bloggkerfið við facebook, það er til plugin fyrir það sem verður gaman að sjá hvernig virkar.
Hrollur.net er enn uppi, á eftir að ákveða hvað ég geri við hann. Bloggin eru núna læst þannig það er ekki hægt að commenta þar, en ég flutti þau öll hingað svo heimurinn gæti notið lengur ;)
Vatnsberi: Þú getur aðeins sjálfum þér um kennt ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð. Annars áttu á hættu kringumstæður sem þú ræður ekki við.     - haha so true
Varta í Nissa
Neinei, Nissi er ekki með HPV vírusinn, heldur splæsti ég á hann nýjum rafgeymi núna um mánaðarmótin.  Geymirinn er framleyddur af VARTA ... ég veit ótrúlega fyndið ;)  Ég var búinn að vera straumlaus síðan 6. mars og var ekki að höndla það neitt rosalega vel, þvílíkur munur að geta núna farið hvert sem er og hvenar sem er.
Annars er nú lítið að frétta, mig er farið að hlakka svoltið til páskana, það er alltaf fjörugt skrall þá, þetta er yfirleitt einsog versló, bara meiri snjór.  Held að kvótinn sé að fara bara 2x út þá, miðað við að það eru 4-5 kvöld í boði, maður þarf að spara sig fyrir suðurferðina sem er helgina eftir páska.  Maður verður jafnvel þar í 2 vikur, ef allt gengur eftir.  Bróðir minn er að skíra og ferma þessa sömu helgi eftir páska, en sitthvort barnið þó ;)
Ég held ég sé að nálgast heimsmet í sjónvarpsglápi, er allavega orðin íslandsmeistari innanhúss ;)  Það er svo mikið af þáttum í gangi að það er alveg full vinna að komast í gegnum þetta allt.  Held að Lost sé klárlega sá besti þessa dagana.  Sá leiðinlegasti og ég horfi ekki á hann er The Gilmore Girls!  Hvað er málið með þær?  Ef ég gleymi sjónvarpinu á og er kannski í tölvunni þá fer það yfirleitt ekkert í taugarnar á mér, en ef gilmore girls eru á þá verð ég svo pirraður á suðinu í þeim að ég verð að skipta um stöð.  Hefur einhver tekið eftir því hvað þær ná mörgum orðum á mínútu??  Ég er viss um að handritið þeirra er janfnþykkt og símaskráin fyrir einn þátt.  Þær tala STANSLAUST! eða tuða!  Meiraðsegja voru þær að æfa skylmingar um daginn sem ég sá óvart, og þær töluðu allan tímam meðan þær voru að skylmast.  Þær eru 2x á dag á einni sky stöðinni og á rúv líka, og mér finnst bara alltaf þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá séu þær þarna, tuðandi á fullu.  Ég bara trúi ekki að einhver geti horft á heilann þátt með þeim án þess að missa vitið.  .... hmm þetta hefði kannski frekar átt heima í nöldurhorninu :)
Vatnsberi: Vatnsberinn hefur tamið sér að takast á við vandamál um leið og þau verða.
Mundu að ekki er allt gull sem glóir og að sígandi lukka er best.
Nöldurhornið
Í framhaldi af hinu geysivinsæla neytendahorni sem var hér á hrollinum um daginn kemur nú nöldurhornið!!  Hrollurinn er ferhyrndur einsog svo margt annað og verður spennandi að sjá hvað hin tvö hornin hafa gott að geyma.
Það sem mig langar til að nöldra yfir núna eru Akureyringar :)  Já, eflaust mun það ekki slá í gegn hjá öllum.  En eftir að hafa búið 6 ár í Reykjavík tók ég sérstaklega eftir því við að flytja hingað hvað umferðar og innkaupa- venjur eru öðruvísi.  Það er alveg ótrúlegur munur að fara í bónus hérna miðað við bónus fyrir sunnan.  Hér eru allir svo lengi, lesandi á pakkana og dólandi við þetta, passa sig líka sérstaklega á að skilja innkaupakerruna sína eftir þannig hún loki örugglega ganginum og enginn komist framhjá og eru bara einfaldlega allstaðar fyrir manni.  Það er varla að maður hætti sér inní kælinn nema vel klæddur, því það gæti tekið nokkra klukkutíma að komast í gegn, maður gæti misst tær og fingur sökum kuls :)  Ég var til dæmis á fá mér Hagkaups kjúlla í gær, sem fæst nú ekki lengur í Reykjavík (einn plús þar) og sá sem var á undan mér var svo lengi að velja sér bita að það var farið að slá í þá þegar hann var loksins búinn. Ég nennti ekki að bíða eftir því þannig ég fór og náði mér í annað á meðan, en þegar ég kom aftur þá var annar kominn í kjúllann, sá var enn lengur! Með kerruna sína á ská sem lokaði ganginum að sjálfsögðu.  Svo þurfti ég að bíða í svona 5mín á kassanum, því það var einhver gella á undan með vesen útaf einhverri peysu, eitthvað í sambandi verðið og lét sækja fyrir sig annan lit og keypti svo hvoruga, til að trompa allt vippaði hún svo upp starfsmannaskírteinunu sínu og fékk afslátt, jájá!  Svo leiðist mér líka hvað maður hittir alltaf einhvern í hverri einustu ferð sem maður kannast við, en á mörkunum með hvort maður eigi að heilsa fólkinu eða ekki, og alltaf einhverjir líka sem maður þekkir alveg.  Sakna þess að geta farið ógreiddur og nývaknaður í rifnum jogginggalla í búð og þurfa ekki að þekkja neinn ;)
Svo er umferðin líka eitthvað svo hæg hérna, og ótillitssöm.  Það eru allir að troða sér eitthvað og ekkert að spá í að hleypa neinum, voða sparsamir á stefnuljósin finnst mér.
Maður er greinilega orðinn algjör borgar-rotta á þessum stutta tíma fyrir sunnan ;) vona að ég venjist þessu hérna áður en ég missi vitið og verð leiddur út úr bónus í spennitreyju ;)
Nissafréttir:
Nissi hefur það gott hérna úti á plani, sáttur með sinn fulla bensíntank og í skýjunum yfir því að vera straumlaus og þurfa ekki að keyra neitt :S  .. en rafgeymirinn var bara tómur á föstudaginn fyrir viku þegar ég ætlaði að nota bílinn og ónýtur í þokkabót.  Ég fór með hann í hleðslu, og eftir 3 daga hafði ekkert komið inná hann, og sýrumæling sýndi að hann væri ónýtur.  Ég keypti þennan geymi notaðann hjá vöku í október, eftir að mínum hafði verið stolið.  En hann hefur greinilega ekki verið betri en þetta.  Þannig ef það á einhver rafgeymi á lausu þarna úti, þá vantar mig einn, er tilbúinn að borga í blíðu og eitthvað smá í peningum ;)
Vatnsberi: Það mun reynast þér þreytandi að ná ekki utan um alla þá hluti, sem þú vilt koma frá í dag. Á hinn bóginn þarf ekki öllum að líka við ykkur.
hrollarnir báðir fluttir
Ég splæsti í ódýra hýsingu handa hrollinum, því ég er alltaf að flytja og nenni ekki að hafa suðandi netþjón í herberginu hjá mér.  Sú hýsing er í London en í gegnum íslenskt fyrirtæki.  Mér fannst alveg tilvalið að styrkja vini okkar þarna í Bretlandi ;)  ... og vænlegt að hafa hrollinn á netþjónabúi sem er örugglega knúið með kolabrennslu eða kjarnaorku.  Þannig að hver músasmellur brennir kannski einum kolamola og styður þannig við "global warming" .. veitir ekki af að fá nokkrar gráður í plús hérna þessa dagana, kannski minna að skafa og svona hehe.  Þó svo að þetta séu alveg topp netþjónar, þá er þetta frekar svifaseint finnst mér.  Er mikið að pæla í að fá einhverja hýsingu frekar innanlands.  Þó það hafi verið helvítis bras að flytja síðuna, eða gagnagrunninn, þá verður það lítið mál svona í annað skiptið og tekur enga stund.
Svo er ég líka fluttur, kominn í B5, eða Bjarkarlund 5.  Þar býr systir mín ásamt manninum sínum og hundinum Tuma.  Mig hefði aldrei grunað hvað er gaman að svona hundum, hef alltaf bara búið með kisum, þær eru allt örðuvísi.  Æðislegt hvað hann tekur alltaf vel á móti manni þegar maður kemur heim og svona.
Ég var líka það heppinn að þau eru með gervihnattadisk, svo ég missi nú ekki af neinu í sjónvarpinu.  Annars hefði ég verið vís með að troða disk einhversstaðar á kofann.  Var að tengja í kvöld og get loksin tekið gleði mína á ný ;) ... reyndar þurfti ég að strengja kapalinn mjög svo ósmekklega eftir miðjum húsveggnum til að koma honum í herbergið mitt, það er ekkert rosalega flott á nýju húsinu, en kemur í ljós hvort maður taki hann eða reyni að ganga betur frá þessu.
Vinna, það er eitthvað minna.  Maður er alltaf bara atvinnulaus, eða að skrifa doctorsritgerð einsog Georg Bjarnfreðarson kallaði það.  Mér leiðist það reyndar ekkert, þó myndi ég nú frekar vilja vera í vinnu og eiga meiri pening, þarf að skoða það eitthvað nánar.
Svo eignaðist ég lítinn frænda 2. Febrúar.  Bróðir minn var að koma með sitt þriðja barn.  Ég hef nú ekki hitt guttann enn þar sem hann fæddist og býr í bandaríkjunum, en mamma er farin út að kíkja á litla kallinn.  Ég á von á að sjá hann um páskana, þegar þau koma til landsins.
Vatnsberi: Samskipti við stofnanir eða hið opinbera koma flatt upp á þig á einhvern hátt. Farðu þér hægt í að velja þér trúnaðarvini sérstaklega af hinu kyninu.
Akureyringur
Þá er maður mættur í sveitina sína gömlu.  Flutningar gengu vel og nissi fór bara létt með þetta norður, þó það væru nokkurhundruð kíló af drasli í bílnum.  Dótið er reyndar enn í bílnum síðan á föstudag, en hver pælir í því svosem :)  Mér fannst ógeðslega erfitt að burðast með alla þessa kassa, stóla og borð, sjónvörp og græjur, og er fyrst núna að losna við strengi og bakverki síðan í flutningunum.  Maður er búinn að safna að sér alltof miklu drasli, það  mætti henda svona 70% af dótinu og maður myndi ekki sakna þess neitt.  Ég fyllti heila geymslu í Reykjavík, ætli hún hafi ekki verið svona 6 fermetrar, og það var alveg uppí loft!  Nissa troðfyllti ég líka, það þétt að ég var farinn að troða skóm í göt sem ég sá á staflanum, því annars hefði skórnir mínir ekki komist með.  Og þegar ég var lagður af stað fattaði ég mér til mikillar skelfingar á einu hringtorginu að ég sá ekki út um hægri hliðina, hvorki úr glugga né spegli.  Það var ekki alveg að virka þannig ég bætti einni dýnu í geymsluna fyrir sunnan, svo ég sæi  nú út á leiðinni heim.  En ferðin sjálf gekk mjög vel, fyrir utan þoku sem var svona 30% af allri leiðinni, mjög þykk.  Smá vesen á nissa reyndar, en eftir innbrotið þá er rafmagnskerfið í smá rugli, háu ljósin virkuðu ekki alveg sem skyldi, en tókst að fá þau til að virka á leiðinni, þarf eitthvað að kíkja á þetta greinilega.
Hrollinum kom ég í loftið í gær, setti serverinn niður í bílskur bara, með þráðlausu korti, það er ekki að virka neitt rosalega vel, bæði lélegt samband og þráðlausa kortið seinvirkt, en þetta dugar alveg þangað til ég flyt á næsta stað.  Er semsagt hjá mömmu núna, en flyt í Bjarkarlundinn til systur minnar og kallsins hennar einhverntímann í næstu viku.  Þar stefni ég á að vera nett blanda af Arthur Spooner og Ted Mosby, en þeir sem hafa séð How I met your mother og King of Queens ættu að þekkja þá ... held ég verði meiri Arthur samt hehe.  Það er hundur á heimilinu, þannig það ætti að vera hægt að fá svona hundalabbara fyrir okkur báða ;)
Það er strax búið að testa djammið á Ak.  Fór í þetta fína partý á lau sem var helvíti gaman, skemmti mér að vísu ekki einsvel í bænum, þar sem ég vill alltaf bara fara í sjallann og leiðist yfirleitt ef ég fer á pöbbana.
Svo fer þetta bara vera spurning um að finna sér einhverja vinnu hérna í sveitinni, ég er ekkert rosalega vongóður, en maður reynir allavega.  Þó það sé vissulega ekki hvatning til þess að hækka atvinnuleysisbæturnar svona.
Janúarpistillinn
Hrollurinn byrjaði nýja árið í netleysi, ég veit ekki hvort það boði mikla farsæld fyrir síðuna á árinu sem er að hefjast.  En 1. Janúar kl c.a 8 um morguninn hætti serverinn hjá mér að ná sambandi við umheiminn og datt þar með hrollurinn út líka.  Ég var staddur fyrir norðan og ætlaði að njóta þess að "stríma" til mín sjónvarpsefni til að gera þynnkuna bærilegri, en þess í stað fékk ég að hafa áhyggjur af þessu netleysi, hvað hefði eiginlega gerst?  Væri rafmagnslaust og allt að skemmast í ísskápnum, hefði verið brotist inn og öllu rústað eða var netlöggan búin að loka tengingunni minni vegna mislöglegs niðurhals.  Þetta pældi ég mikið í.  Ekki var hægt að hringja í þjónustuverið, það var bara opið frá 1 - 4, ég uppgvötaði þetta um 5 leitið.  En föstudagskvöldið 2. jan þegar ég var mættur suður, sá ég að það var svosem í lagi með allt, allar þessar kenningar mínar voru rangar, routerinn náði bara ekki sambandi við netþjónustuna, en það var samt adsl merki á línunni.  Ég var búinn að ákveða að lykilorðið mitt hafði dottið út 1. jan, því það var svosem ekkert bilað. Og auðvitað var ekki hægt að fá það lagað, þar sem það vinna engir tæknimenn um kvöldin og um helgar hjá netveitunni minni og þurfti ég því að þjást í netleysi allt kvöldið :)  ... laugardaginn fór ég og sótti nýjann router til að komast þá allavega á netið, þangað til þetta lykilorð yrði lagað á mánudaginn.  Gallinn við að vera með þennan lánsrouter var að síðan mín virkar ekkert í honum og varla hægt að vera á torrent, þar sem þetta er allt harðlæst hjá þeim og ekki hægt að opna fyrir portin, nema hringja, og nennti því ekki fyrir einn dag.  Svo loks kemur mánudagur, og ég hringi frekar pirraður í netveituna, tæknimennirnir þar fullvissa mig um að lykilorðið sé í lagi, línan sé í lagi og ef það sé eitthvað að þá er það í stillingum hjá mér eða bilaður router ... og ég var bara "nei, það er ekki séns, þetta er pottþétt hjá ykkur".  Það var boðist til þess að stofna mig aftur í kerfinu og svona til að friða mig, meðan átti ég bara að bíða rólegur.  Á meðan ég beið datt mér í hug að velja þarna "restore factory settings" og setja inn stillingarnar aftur, og var svo pottþéttur á því að það myndi ekki virka, langaði bara rétt að prófa  ... og viti menn, uhh, þetta var bilað mín megin :o Þá hafði routerinn farið yfirum, líklegast útaf of mörgum torrent tengingum, og lagaðist ekkert við að vera tekinn úr sambandi eða endurræstur.  Þannig að ég mátti hringja með skottið á milli lappanna og segja "uhh, þetta var víst hérna meginn, þannig það þarf ekki að stofna nýtt lykilorð fyrir mig"
Meira vesen hefur líka gerst fyrir mig á þessu ári, sem er nú bara rétt vikugamalt.  En ég fór með Nissa litla á dekkjaverkstæði í dag til að láta setja undir hann nagladekkin, ekki seinna að vænna því það er nú alveg að koma vetur!  Fann dekkin mín og fanst þau bara í fínu ástandi, enda eiginlega aldrei undir bílnum :)  Fór svo með þau og lét skipta.  Á heimleiðinni datt mér í hug að kíkja í Hagkaup og fá mér eitthvað gott í kvöldmat, en ég var varla kominn kílómeter frá dekkjaverkstæðinu (á höfðanum) þegar það springur eitt dekkið á bílnum!! Og hvar er ég þá?? Jú, þá er ég á miðri Miklubrautinni klukkan 5!! Einmitt þegar umferðin er í hámarki :o Mér fannst vera alltof langt í næsta afleggjara hefði ég viljað komast af brautinni þannig ég kom mér bara í skjól á einni aðreininni og setti hazzardljósin á.  Þar hef ég sjaldan verið jafn skelkaður á æfinni.  Ég var semsagt á svipupum stað og Hagkaup, þar sem Miklabrautin er alveg 7 akreinar með þessari aðrein, og 80 eða 90 km hámarkshraða (allir á 100), rigning, dimmt og mikil umferð.  Það var einsog bílarnir föttuðu ekki að ég var stopp, þó ég væri þarna í kantinum með blikkljósin á.  Keyrðu alveg þvílíkt hratt alltaf upp að mér og sveigðu frá á síðustu stundu, sumir stoppuðu.  Svo sá ég alltaf í speglunum einn og einn sem var að nálgast á þvílíka hraðanum og greinilega vissi ekki að ég væri stopp og sveigðu frá á síðustu stundu, sem betur fer var þá laust pláss fyrir þá á næstu akrein við hliðina, annars hefði þetta endað illa..  Ég sá fljótt að þetta var kannski ekki alveg að virka og keyrði einhverja 200 metra á sprungna dekkinu til að komast í strætóskotið, sem er þarna bakvið Hagkaup, þar allavega var ég ekki í þessari brjáluðu umferð ... eða þangað til brjáluðu stætóarnir byrjuðu að koma!  Þeir eru snar!  En þarna hringdi ég einmitt í dekkjaverkstæðið og sagði þeim að ég hefði komist 1 km á dekkjunum og hvað væri í boði fyrir menn sem lenda í svoleiðis.  Þeir buðust til að senda mann með loft til að prófa pumpa í dekkið svo ég kæmist til baka, og var það gert.  Nema hvað að dekkið var alveg flatt og greinilega orðið eitthvað skakt á felgunni þannig þetta var vonlaust.  Setti hann því varadekkið mitt bara undir og sagði mér að koma aftur á verkstæðið.  Þeir eru ekkert rosalega skarpir þar, því ég fór bara á biðstofuna á meðan þetta yrði lagað, en þá kom einn og bað mig að sjá dekkið, því það væri ekkert að því, en það var varadekkið, sem þeir voru byrjaðir að affelga, það er á ljótri stálfelgu og ekkert líkt hinum dekkjunum... og SUMARDEKK!  En mitt dekk var víst með rifnum kanti, sem ég veit nú ekki hvernig gerist, en líklega hefur það verið þeim að kenna, þar sem mér var gefið eitthvað notað sólað nagladekk, sem var líka sett frítt undir bílinn.  Gamla dekkið var örugglega mikið betra, en þetta var svo loðið alltsaman, fékk aldrei að skoða það gamla einusinni.  En þetta ætti vonandi að koma mér norður í hálkunni sem verður líklega í næstu viku, það vantar allavega ekki frostið í kortunum þá.  Akureyri -23°  brrrrrr.
Ég býst við að keyra á fimmtudeginum norður, með fullan bíl að dóti, annað fer svo í geymslu.  Vona að það hafist alltsaman, og að ég finni einhvern til að bera með mér þungu hlutina, sjónvarpið útí bíl og svona, það hlýtur eiginlega að vera.  Annars kemur það örugglega allt í febrúarpistlinum, hvernig flutningarnir gengu, komst nissi alla leið norður og hvernig lífið sé á Akueryri ;)
Vatnsberi: Þú getur lært heilmargt um sjálfa/n þig af samræðum þínum við aðra í dag. Leyfðu þeim að flæða, þótt ekki sé það allt jafnskemmtilegt, sem þú upplifir.
Jólahrollvekjan
Eru ekki jólin að fara detta í hús með allri sinni gleði ;)  Mig hlakkar nú alltaf mest til tímans milli jóla og nýárs, því þá er pakkavesenið allt að baki og aflsöppun og djamm tekið við.  Ekki það að ég sé neitt úrvinda á því að vera í endalausu sumarfríi, en það verður líka gaman að geta kallað það jólafrí núna.  Plönin eru alltaf að breytast, á dagskránni núna er Reykjavíkurdjamm 19.des (því ég hef nú ekki djammað hér í 5 vikur í röð!!) ...já, það er satt!, verð að ná einu góðu áður en ég fer "heim". Og daginn eftir, eða 20.des ætlaði ég mér að bruna norður og jafnvel komast í sjallann á sálarball.  Veit þetta er nú fullmikil bjartsýni hjá mér að halda ég geti þetta allt sömu helgina, en eftir 5 vikna pásu heldég að það verði ekkert stórmál.  Ég er að reyna redda mér fari eða bílaleigubíl til þess að þurfa ekki að splæsa í umfelgun og bensín á nissa, hann er enn á sömmerunum ;)  því maður veður ekkert í seðlum svona þegar maður gerir ekki neitt.  Svo hafði ég hugsað mér að skella mér suður strax eftir áramót, til þess þá að flytja út úr íbúðinni minni og koma dótinu mínu fyrir í geymslu.  Þá skelli ég að sjálfsögðu vetrartuðrunum undir nissa og fyllann af bensíni, en janúar verður nú ódýrari mánuður heldur en desember, og ætti það nú að reddast.  Það hefði samt verið skemmtilegast að vera búinn að þessu, en held þetta sé eina leiðin.  Mér finnst samt ótrúlega leiðinlegt að flytja og þrífa, og ekki langt síðan ég gerði það síðast, en þetta verður maður víst að gera.  En munar allavega um að borga ekki leiguna í Reykjavík, heldur betur.  Þannig að maður verður orðinn Akureyringur aftur í byrjun janúar ef ekkert breytist, einsgott að það verði stuð :)
Það væri gaman að fá að heyra af því ef einhver veit um geymslu á góðu verði fyrir sófa, rúm, eldhúsborð og stóla, tölvuborð og sófaborð, því sama hvað ég reyni þá kemst þetta ekki í nissa, eða í herbergið sem ég verð í fyrir norðan :)
Vatnsberi: Hver kunningi sem þú eignast reynir á félagsfærnina.
Tilfinningar þínar láta þér líða vel og hugsa um lífið á jákvæðan hátt.
Neytendahornið
Dr.Hrollur hlýtur að geta verið með svona neytendahorn einsog Dr.Gunni.  En það sem sló sálu mína utanundir um daginn var auglýsing frá kfc, uppáhalds veitingastaðnum mínum.  "0 gr transfita!"  Ég hef ekki þorað að fá mér skamt hjá þeim síðan ég sá þetta, vill frekar leifa góða bragðinu að lifa í minningunni en að skemma það með transfituleysi.  Ég viðurkenni það að ég veit svosem ekkert hvað hún gerir, annað en að setjast inní kransæðar og stýfla, en eitthvað hlýtir að vera gott við hana, mér dettur í hug einsog sykur í gosi ... og þá er kannski transfitulaus kfc einsog diet kók :o Það náttúrulega gengur ekki, það ætti allavega að vera þá hægt að fá transfitu með í lítilli dollu, svona einsog kokteilsósu, og kannski sprautu með, ef maðu skyldi vilja sprauta henni inní kjúllann ;)  Og hvað er svo málið með kartöflumúsina og hrísgrjónin!  Ef maður ætlar að vera í hollustunni, þá fer maður bara á grænan kost eða eitthvað, ekki skemma kfc :(  Ég ætlaði ekkert að væla yfir verðinu á honum, en nú kostar skammtuirnn 949 krónur og fer hækkandi, fyrir þann pening getur maður fengið kíló af kjúklingabitum, 2 lítra af pepsí, 1 kg af frönskum og stóra dollu af hrásallati í bónus, sem endist í matinn örugglega 4x.  Þannig að já, kannski mætti aðeins slá af verðinu hjá þeim, þarna í transfitulausa, kartöflumúsa og verðbólgukvetjandi kjúklingabitastaðnum.
Önnur gleðitíðindi, þó ekki fyrir hjartað, þá sá ég í einni af mörgum ferðum mínum í bónus, að þeir eru loks farnir að selja Red Bull!  Össss!  Það er nú besta blandið í bænum og veitir áfenginu hið fullkomna bragð, hressir, bætir, kætir og sprækir.  Smá hjartsláttartruflanir hafa aldrei skaðað neinn, er það nokkuð??  Ég sá nú ekki verðið, ætli dósin sé ekki á 200 kall eða svo, vonandi ekki mikið meira.  Sá líka euroshopper orkudrykk, hann kostaði 99 krónur, og ef ég þekki vini mína hjá euroshopper rétt, þá er þetta örugglega bara díselolía bragðbætt með ísvara :)  En svo er það líka annað, einsog með redbull, um leið og hann fæst hér í bónus þá fer mesti glansinn af honum og verður ekki eins spennandi einsog þegar hann fékst bara í útlöndum, líkt og m&m&m-ið forðum daga.
Jæja, núna er klukkan að ganga 10 að morgni til!
Já, að morgni til.  Ég er í viðsnúningsprógrammi á líkamsklukkunni, en hún var farin að hallast aðeins meira að sofa út langt frammeftir degi, og sofna svo ekki á næturna fyrr en langt undir morgun.  Var farið að leiðast það og greip því gæsina þegar ég fann fyrir þreytu í gær klukkan 10 að fara bara að sofa!  Vaknaði líka klukkan 6 í morgun og er búinn að vera vakandi síðan hehe .. en samt drulluþreyttur, en má ekki leggja mig, því þá skemmist programmið, það er bara í háttin klukkan 1 í kvöld/nótt.  Maður þarf að hafa sólarhringinn réttann áður en ég byrja á vefsíðugerðarnámskeiðinu sem ég er að fara á í næstu viku, það verður örugglega ekki leiðinlegt, og hrollurinn á eftir að hafa gott af því, en þetta eru alveg 60 tímar, versna varla við það ... þannig það eru spennandi tímar framundan á hrollinum... ;)
Án þess að hafa sótt námskeiðið smíðaði ég þetta script sem sést hér til hliðar, en þetta er beintenging við seðlabankann og sýnir raungengi krónunnar, einsog það er akkúrat núna! :)
Vatnsberi: Þér tekst vel upp við að finna eitthvað aðdáunarvert í fari fólksins í kringum þig. Haltu öllum verkefnum aðskildum og raðaðu þeim upp í forgangsröð.
Blue
Sama síðan, sama ruglið en nýtt útlit.  Jájá, hrollurinn fór í smá makeover í vikunni, byrjaði með smá fikti sem endaði með þessum ósköpum.  Þetta er svosem ekkert nýtt, skipti bara um liti, sama grindin á bakvið.  Fannst þurfa svona vetrar-kulda-kreppulit á þetta hjá mér;)  ... á eftir að ákveða hvort ég hafi nokkuð farið yfir strikið með að skella íslandskortinu þarna á logoið.  Útlitið á því minnti mig nefnilega eitthvað svo á venus ... sem er nú heitasta plánetan í sólkerfinu, kannski viðeigandi að heitasta síðan á internetinu hafi þannig logo -hehe.
Annars er nú lítið að frétta, ég held ég verði atvinnulaus í allavega 5 mánuði í viðbót með þessu áframhaldi. Atvinnuástandið var lélegt í sumar, svo versnaði það, svo varð það mjög vont en núna er það vonlaust.  Það er varla að maður nenni að senda  umsóknir.  Ég var alveg að fara hreppa þessa fínu vinnu hjá ónefndu fyrirtæki, fór í viðtal og strax 2 dögum seinna var ég kallaður inn aftur og fékk að skoða allt og leist bara vel á.  Svo sögðust þau ætla hafa samband við mig og hringdu 3 dögum seinna, en þá var komið stopp á ráðningar hjá þeim, ég get fengið vinnuna... ef ég vill byrja í janúar... miðað við að ástandið hafi skánað þá.  Ég veit ekki hvort ég held þetta út þangað til, það eru að vísu bara 2 mánuðir í janúar, en verður ástandið skárra þá?   Annars er maður eiginlega búinn að gleyma hvernig er að vinna, veit allavega að ég get ekki séð af 9 klukkutímum af sólarhringnum í eitthvað svoleiðis rugl, nóg annað að gera:)
Stór galli við atvinnuleysið er að hafa ekki möguleika á að taka þátt í singing bee, ha! Ég meina afhverju ekki? Ég væri "so there" ;)  ... heyri Jónsa alveg fyrir mér kynna þáttinn: "í kvöld keppir dominos við atvinnulausa!!!!" Jájá, svo finnst mér alveg vanta svona starfsmannafélag hjá atvinnulausum, það eru engin bjórkvöld eða neitt svoleiðis, ekkert jólaglögg :(
Þetta er kannski eitthvað sem ég tek að mér bara, hringi í jó-sig (Jóhönnu Sigurðardóttur) á morgun og ber þetta undir hana, hún verður þokkalega til í þetta, enda svört.
Nissi er enn ekki með neinar græjur, þó svo að uppáhaldssystir mín hafi sent mér þennan fína geislaspilara til að setja í hann, ég hef bara ekki haft tíma (hef ekki nennt) að setja hann í, enda kalt úti og svona, dimmt líka.  Svo verður honum bara stolið ef ég set hann í.  Ég hef ekki enn fengið svar frá mínu tryggingarfélagi heldur hvort þeir bæti eitthvað, þeir hljóta koma sér undan þessu, en kemur í ljós.
En í þessu atvinnuleysi og kreppu hefur maður neyðst til að djamma bara aðrahverja helgi, sem er mjög leiðinlegt, gott samt að síðasta helgi var djammlaus, sem þýðir að næsta verður góð:)  Svo er það spurning hvort maður ætti að skella sér norður í viku kringum miðjan, bara svona til að fá einhvarja hreyfingu, er kominn með pullufar á síðuna eftir sófann minn, held ég eyði of miklum tíma þar.  Mikil pæling.
Vatnsberi: Þú býrð yfir krafti sem getur orðið öðrum hvatning til framkvæmda. Rangt! Þú munt fá heilmikið út úr því sem þér finnst vanalega þrautleiðilegt.
...sæææll, hvað þýðir þetta?? "Býrð yfir miklum krafti"...svo bara EEERRHHH!! WRONG!!
Nissi svívirtur ...
... og skilinn eftir í öngum sínum á plani BT-Skeifunnar um helgina!... er fyrirsögnin sem ég hefði viljað sjá á forsíðu fréttablaðsins á mánudag, en í stað þess var bara rætt um einhverja kreppu og endalaust volæði.  En það var síðustu helgi sem ég ákvað í sakleysi mínu að skella mér norður í nokkra daga, og fékk til þess bílaleigubíl í skeifunni.  Mér fannst það nú ekki tiltökumál að geyma litla gullmolann minn þar rétt á meðan, enda vanur að leggja honum þarna og hef geymt hann þar nokkrusinnum yfir nótt áður.  En ekki var aðkoman falleg þegar ég kom aftur í borgina á miðvikudagsmorgun og ætlaði að sækja litla kaggann minn, en þá höfðu óprúttnir aumingjar brotist inní bílinn og hreinsað úr honum allt sem mögulegt væri að koma í verð, og skilið bílinn eftir ó-ökuhæfann.  Lásar bílsins höfðu verið þvingaðir upp með stóru skrúfjárni og þannig opnaður.  "Öflugt" viper þjófavarnarkerfið hefur ekki þótt stór hindrun fyrir bansetta glæpamennina þar sem þeir opnuðu bara húddið og rifu lúðurinn úr sambandi.  Eftiráséð hefði maður helst átt að tengja bara sprengju við það, þá hefði maður allavega náð þessum aumingjum.  En þeir tóku geislaspilarann, tvær bassakeilur, magnarann, alla afturhilluna með hátölurum, radarvarann og já, það hefur ekki dugað þeim því þeir tóku rafgeymi bílsins líka.  Upphaflega höfðu þeir reynt að taka bílinn, því svissinn er skemmdur eftir að hafa verið þvingaður með skrúfjárni.  Það er ekki auðvelt að eiga svona flottan bíl, get ég sagt ykkur :)  Hátt í 30 skrifaðir geisladiskar voru teknir líka, það kallar maður reyndar að skjóta sig í fótinn, því þeir sem þekkja mig og minn tónlistarsmekk kannski vita að það er engin gullaldartónlist þar á ferð hehe. En óhugnalegast þykir mér samt að þeir tæmdu hanskahólfið mitt, þar sem ég hef safnað saman allskyns kvittunum, reikningum og fleira í tæp 10 ár.  Reyndar veit ég bara ekki hvað það hafði nákvæmlega að geyma.
Björtu hliðarnar eru hinsvegar þær að á meðan þeir tæmdu bílinn,  þar á meðal hólf sem geisldiskarnir voru í, tóku þeir ekki eftir varalykli bílsins sem þar var, ásamt fjarstýringu til að slökkva á þjófavarnarkerfinu og DÆLULYKLI!  Ég hefði síður viljað borga bensínið undir þá líka, og í öskubakka bílsins var alveg 500 kall í klinki og fjarstýringin sem þarf til að ræsa geislaspilarann... FEIS !! Það er nefnilega engin leið að kveikja á honum án þess að skjóta fyrst með henni, ef straumur hefur verið tekinn af bílnum eða tækið aftengt, þannig hann kemur engum að gagni nema ég fái hann aftur, þetta flöskuðu þeir á aumingjarnir.  Ég kom samt kagganum heim í gær, eftir að hafa fengið nýjann rafgeymi í bílinn og náð að liðka upp svissinn aftur.  Og það er svosem ekkert að bílnum annað en að það vantar græjurnar til að yfirgnæfa öll hljóðin sem nissi býr til við almennan akstur :)  Bílinn var náttúrulega ekkert í kaskó, og ekki með neina sérstaka græjutryggingu, en ég hef lagt inn kröfu hjá mínu tryggingafélagi um að fjölskyldutrygging mín bæti þetta að einhverju leiti, veit svosem ekkert hvernig það fer ... yfirleitt finna þeir alltaf eitthvað til að borga ekki  ... einsog: nú var þetta rauður bíll? Þeir falla ekki undir skilmálana (þó þeir séu bleikir að aftan).  Ég lifi samt í voninni um að þetta finnist í einhverju fíkniefnabælinu, og hef ég sent lögreglunni myndir af öllum hlutunum sem í bílnum var.  Þeir reyndar hringdu í mig strax í morgun, þá höfðu þeir fundið eitthvað Club Nokia kort skráð á mig sem hafði líklega verið í hanskahólfi bílsins, en það var í einhverju veski sem þeir höfðu undir höndum, en vildu ekki gefa meira upp, en sögðu mér samt að vera ekkert að gera mér miklar vonir, þó það hefði fundist.
Þannig að ef einhver veit um góðar græjur til sölu fyrir lítinn pening, tala nú ekki um að það séu mínar gömlu, þá myndi ég vilja vita af því.  En ég get allavega vottað það að það er ekki gaman að lenda í svona, og leiðinlegast ef þessir aumingjar komast upp með þetta.  En Nissi verður ekkert þjóðnýttur þó þetta hafi vissulega verið áfall fyrir hann, nú hefst bara  uppbyggingin ... ég held ég skilji núna hvernig þarna Róbert Wesmann líði eftir að hann keypti í Glitni einum degi fyrir kreppu, þetta er örugglega mjög svipað ;)
Vatnsberi: Þú elskar fólk sem kemur frá ólíkum heimum, og samskipti þeirra eru bara tilkomin vegna þín. Haltu boð fyrir nokkra uppáhalds vini þína.