Já, spurning um að taka blogg á þetta, enda margt gerst á síðustu dögum. Birkir og Anný eignuðust litla snúllu, hún heitir Stúlka Birkisdóttir, svoltið skrítið nafn en venst ótrúlega vel :) .. pravda brann til kaldra kola, mig hefur aldrei langað eins mikið á pravda og einmitt núna, þegar það er ekki hægt. Horfðum á þetta gerast í vinnuni á stórum skjám, bæði með rúv og stöð2 í gangi í einu, þannig að maður hafði 2 sjónarhorn.. mun betra en að vera á staðnum, ég veit það því ég fór og skoðaði herlegheitin á meðan það logaði enn. Varð mjög hissa að sjá svo þarna inn í fréttunum, en það var tekið viðtal við eigandann daginn eftir inná staðnum, og aðalbarinn var bara stráheill, það virtist ekki einusinni vera sót þar, glösin og flöskurnar hreinar, kertin hvít og óbrunnin, meiraðsegja í stiganum þar sem er opið upp, þar var bara rusl, en ekkert sót og einmitt kerti óbrunnin og hrein þar. Ég held að það hafi bara logað í þakinu, en það slapp nú ekki einsvel þarna hinn barinn vinstra megin (inná pravda). Mér var svosem sama um þessi hús, en er á algjörum bömmar að það sé búið að fækka um einn skemmtistað í borginni :) ... sem einmitt minnir á það að ég sleppti úr helgi!!! JEI, þessi á sko skilið Thule... næstu helgi :) En það var löngu ákveðið eftir erfiða páska, og erfiða helgi þar á eftir að það væri kominn tími á pásu, sem ég lét verða af. Mér leiddist nú samt ekki eina mínútu, því ég dundaði mér við að skipta um harða diskinn sem hrollurinn er vistaður á, setti einn mikið stærri og hraðvirkari í staðinn, og á eigin IDE stýringu svo hann virki alveg á fullum hraða. Það tók einhverja 15 klukutíma að fá þetta til að virka einsog það á að gera, tölvan sem hýsir hrollinn er frekar gömul og var ekki sátt við þennan stóra disk, þannig að ég setti í hana diskastýringu sem hún var nú ekki par hrifin af heldur, en þetta hafðist allt. Smá vesen líka að flytja stýrikerfið yfir af litla disknum á þann stóra, því ég hafði ekki gert slíkt áður, en lítið mál í dag. Síðan ætti því að vera mun sprækari núna en hún var, eða svona á meðan ég er ekki að downloada neinu á meðan sem étur upp bandvíddina :/ En í dag tók ég nú samt þynnkudag, þó svo ég hafi ekki verið þunnur þá eyddi ég honum samt yfir sjónvarpinu með Rizzo pizzu, sem eru b.t.w. mjööög góðar.. 100% eldbökun 100% metnaður haha.
En já, stúlka fæddist, pravda brann, ég sleppti úr helgi og hrollurin er kominn á nýtt drif. Viðburðarík vika, þótt ekki sé minna sagt.
April 2007 Archives
Já, maður ætlaði nú aldeilis að sleppa úr helgi, en annað kom nú á daginn :) - Það var svona árshátíð hjá okkur í BTSK sem ég gat bara ekki hugsað mér að sleppa. Byrjuðum á Red chilli í pósthússtræti og fórum svo í risa rútu í skeifuna þar sem áfengið flæddi alveg eftir veggjunum. Var alveg helvíti gaman. Ég náði að halda mér ágætlega frá skotunum og snerti ekki á tekílainu, þannig að sunnudagurinn var alveg bærilegur. Ég náði svo miklum gæðatíma með sjónvarpinu mínu í gær samt [þynnkusunnudagur]. Ég horfði á 2 Lost þætti, 2 Jericho, 2 Boston Legal, 1 Soutpark 1 Grey´s og 1 Ugly Betty. Seinni helminginn á Back to the future III sem var í sjónvarpinu þegar ég vaknaði. Borðaði 1/3 af páskaegginu mínu, hlölla gærdagsinns. Og hafði það semsagt bara næs, fyrir utan hausverk daginn eftir.
Það var lítið fjör í bænum, en eitt merkilegt man ég eftir, ég var í leigubílaröðinni á sama tíma og Jógvan í xfactor haha, ég öfunda hann ekki á að vera svona þekktur á djamminu, hálf vorkenndi honum, því inní leigubílaskýlinu voru allir að bögga hann eitthvað, hann var líka ekkert sérlega kátur. Færeyski folinn, sýndist hann vera með kellingu uppá arminn, strax farinn að hösla úta xfactorinn :)
Í öðrum fréttum, þá á aðfaranótt mánudags opnaðist hurðin mín alltíeinu fram á stigagang :o .. ég var ekki farinn að sofa, var enn í tv world, en það bara svo skrítið þar sem það eru 2 læsingar á hurðinni, maður þarf að ýta húninumm alveg niður og snúa lykli til að opna hana, ég fæ hana engan veginn til að gera þetta aftur allavega. Það var pínu hvasst úti þannig að það blés smá í gegn hjá mér, eins skýringin sem mér dettur í hug er að ég hafi ekki lokað þegar ég var að koma heim af djamminu, heldur bara hallað hurðinni og hún hafi tollað þannig útaf gegnumblæstrinum?? Eða the booogie man :) En þetta var mjög spúkí, og þar sem ég bý bara í stúdíóíbúð þá er ég allavega feginn að það var ekki alveg galopið fram á stigagang allan sunnudaginn eða eitthvað á meðan ég var sofandi haha.
En ég segi það og skrifa hér, næsta helgi er ekki djammhelgi, og ekki sumardagurinn fyrsti heldur ... þá er bara spurning um að standa við það!

Jæja, þá fara blessaðir páskarnir að detta inn með allri sinni gleði :) Ég er svoltið hrifinn af páskunum því það eru margir góðir frídagar þarna einsog skírdagur, föstudagurinn mjööög langi og annar í páskum, allt góðir dagar með engri vinnuskyldu. Einsog alltaf er maður alveg ósjálfbjarga við að koma sér norður. Var búinn að ákveða að fara á Nissa, til að geta líka haft bíl fyrir norðan alveg þegar ég vildi. Lét meiraðsegja skipta um olíu en það hef ég ekki gert síðan 2004. En þá er eitthvað páskahret á leiðinni og ég bara get ekki hugsað mér að láta umfelga og setja vetrardekkin undir svona 5 mín í sumar, bara til að skipta aftur þegar ég kem suður. Þannig að nissi fær bara frí líka um páskana.
Maður er búinn að senda á bílaleigurnar fyrirspurnir um að ferja bíla á milli, og svo er maður búinn að heyra af nokkrum sem mögulega fara, þarf að heyra betur í því liði, þannig að þetta hlýtur að hafast, ef ekki þá verður eflaust stuð í kompunni við stóragerði.
Svo er ball með silvíu nótt á nasa ásamt trabant annaðkvöld (miðvd. 4. apr) ég held að það gæti verið athyglisvert?? En maður kannski sleppir því samt, enda get ég ekki ímyndað mér neinn sem væri til í að koma þangað haha, afhverju á maður ekki tvíburabróðir? :)
