
Já, sektin er komin :( ... 30.000.- kjell kostar það að vanvirða lögin svona. Þó með 25% afslætti fer það niður í 22.500, sama verð og á ferð til köben báðar leiðir :(
Mér finnst mjög leiðinlegt að þurfa að borga þetta og kenni nissa alfarið um að hafa farið svona hratt! Jæja, maður getur þá allavega bara klárað þetta og reynt að gleyma því.
Helgin síðasta var nokkuð góð, það var Árdegispartý. Barinn var opinn og mætingin léleg ... eða kannski ekki léleg, við skemmtilega fólkið mættum, það vantaði bara leiðindapúkana hehe. En það þýddi að við þurftum að reyna klára allt áfengið, sem tókst b.t.w. alls ekki, rétt helminginn. En það hafði þær afleiðingar að við munum eiginlega ekkert eftir þessu djammi, engin af okkur. Held sveimér þá að við þurfum bara að taka það aftur til upprifjunar. Ég tók nú fullt af myndum, þær ættu að vera einhversstaðar hér. En við erum búin að vera í vinnuni "bíddu fórum við ekki á Barinn?" "jú ég held það" "en var það ekki bara í 5 mín" "nei, held að það hafi verið klukkutími" En við erum allavega viss um að það var gaman, það skiptir öllu :)
Ég ætla skella mér norður í sveit næstu helgi, 28 júní. Þarf að sjá Dúblínsku Gunnuna og afmælisbarnið hana Freyju, svo einhverjir séu nefndir, vonandi verður eitthvað skemmtileg gert sér til dundurs :) Þar sem flug er þónokkuð billegra en bensín+göng+sektir þá ákvað ég bara að taka vélfugl á þetta norður, þó svo að það sé snarhættulegt, maður tekur bara sénsinn bensinn. En þetta er bara stutt helgarstopp, svo tekur við alvara lífsins strax á eftir í borginni.

