Dagur 1 - punktur *varúð, löng færsla og harla spennandi! :)
Já, maður lenti í morgun á fokker 50 einkaþotunni sinni á Egilsstaðaflugvelli og ekki frá því að menningarsjokkið hafi strax sagt til sín :) Þetta minnir pínu á Dalvík, ansi lítið og rólegt. Veit að ég kem frá Hauganesi og ætti því ekki að kalla allt ömmu mína, en þetta er spes, held að það verði samt alveg fínt. Ótrúlega róleg búðin, allavega miðað við þá gömlu, svipað og að fara úr eldinum yfir í öskuna. Skilst að það eigi eftir að aukast fjörið þegar líður á vikuna, útsala á fimmtudaginn og svo á sunnudag fyllist allt af útlendingum þegar kárahnjúkagengið kemur í bæinn í sinni sunnudagsrútuferð. Skilst að þeir séu afgreiddir á táknmáli, því þeir hvortki tala ensku né íslensku, hvað þá dönsku sem ég er b.t.w fluent í ;)
Íbúðin sem ég er í er algjör höll miðað við kitruna mína í Reykjavík, svolítill munur á einsherbegja 30fm kompunni minni og þessari 3 herbergja 90fm íbúð með stórri geymslu og öllu. Manni líður samt pínu einsog Palla sem var einn í heiminum í þessu, einsgott að það komi einhver í heimsókn hingað í gestaherbergið :) - Það átti að skaffa mér interneti, því það er ekki lengur munaður heldur nauðsyn, en ég held ég biðji þá um að afpanta það, því það er þetta fína net sem næst hérna um alla íbúð frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, spurning hvort það dugi ekki bara, en skólinn er hérna í næsta húsi.
En ég sakna NISSA! hann er bara aleinn á Reykjavíkurflugvelli og hefur ekki hugmynd um að ég komi ekki heim fyrr en eftir 5 vikur, ég held ég hafi bara aldrei verið jafnlegni frá honum eða bíllaus, ja síðan kannski að ég var 16 - 17 og átti engann bíl, en það eru nokkur ár síðan. Ætli verði ekki búið að klippa af honum þegar ég kem til baka, hann verður pottþétt allavega straumlaus ... en það er ekkert sem vinir mínir í FÍB redda ekki. Ef einhver á leið á flugvöllinn, endilega þá heilsa uppá hann fyrir mig og klappa honum. Ég er samt að fara labba í vinnuna í 1. skiptið í fyrramálið, það er einhver göngustígur sem á að vera stuttur og góður, en samt miðað við spottann að keyra hingað þá er ég viss um að ég verði alveg 10 mín að töllta þetta, maður verður örugglega bara massaður þegar maður kemur til baka.
Svo pakkaði ég niður öðrum nauðsynjamunum áður en ég fór og setti á bíl, þannig að sá pakki ætti að koma á miðvikudag, en í honum er diskur, móttakari og xbox sem er fullt af bíó og þáttum. Spurning hvernig ég kem þessu heim bíllaus, en jæja. Ég gat bara ekki hugsað mér 5 vikur án þessara hluta hérna í sveitinni, er t.d. að horfa á endursýningu á spaugstofunni á RÚV núna ...good times. En það er samt ljótt ef maður getur ekki farið neitt án þess að hafa net og sky, hvernig endar það eiginlega? ...bad times.
Verra líka að ég hef einusinni lent í vandræðum í orlofsíbúð í eigu sömu aðila fyrir að vera með disk í leifisleysi, já þetta er nefnilega ekki í fyrsta skiptið sem ég geri þetta :) En þá var ég á 10. hæð, hér á jarðhæð ætti þetta ekki að vera neitt ves ... vonum það allavegana.
Og hvað er svo málið með flugvöllinn hér, er örugglega búinn að heyra í 3 þotum og 2 flugvélum taka á loft síðan klukkan 10, þetta er bara einsog LAX á góðum degi.
Myndin hér að ofan er svo af blokkinni minni hérna, sem þið ætlið að heimsækja mig í, já já, það held ég nú :)
Ég gleymdi að taka það fram í Danmerkurfærslunni hér að undan að ég hitti Jamie Oliver á Kastrup, hann spurði mig "are you going to Iceland" og ég sagði "yes" , enda stóð ég í tékkin röðinni fyrir ICELAND, en var að vesenast með eitthvað hjól þarna og gæti hafa verið fyrir London röðinni líka. Ég og celebbin sko, verst að epsoninn var kominn ofaní tösku. Svo voru Einar Bárðar og Jakop Frímann í fríhöfninni í Leifsstöð - Tilgangslaus saga, ég veit :)
En svo er maður enn að jafna sig eftir viðburðarríka helgi, en ég afkastaði það að fara í 4 partý og geri aðrir betur! Eitt kveðjuparty, eitt afmæli, eitt vinnupartý og svo brúðkaupið hjá bróður mínum sem var haldið á Hilton Nordica. Það var alveg keppnis, með dýrindis veitingum og hljómsveit og allar græjur. Steppi Hilmars tróð upp og Lisa sem var í Idolinu. Svo var maður einsog hálfviti í jakkafötunum í bænum, alveg til lokunar. Var búinn að gleyma hvað það er kaaaaalt í leigubílaröðinni þegar vetur nálgast, en ég hélt að ég yrði úti þar. Ég braut samt enga lögreglusamþykkt, þó svo að það gæti hugsast að ég hafi laumað einu glasi út :)
Stjörnuspáin mín í dag á Mbl:
Vatnsberi: Þú horfir inn á við og mætir mörgun lífsgátunum. Já, það er skrýtið að vera fullorðinn og enn að pæla í hvað maður vill verða þegar maður verður stór.
Ótrúlegt hvað þeir hitta alltaf naglann á höfuðið þarna :)

Eitt sem ég væri sko til í að hafa á íslandi er 7-eleven búðirnar, elskaði að hafa þær, búðirnar eru útúm allt, alltaf opnar og selja áfengi. Maður gat labbað inn og keypt sér kaldann bjór og snickers... svoleiðis á það að vera. En varðandi dönskuna, þá komst ég að því að ég kann helling í henni, þó svo að ég skilji danina ekkert rosalega vel, en drukkinn var maður einsog infæddur sko hehe, eða svo fannst manni. - TAK skal du ha'