Össs, þetta verður búið áður en maður veit af. Ég á bara eftir að klára daginn í dag, stuttan dag á morgun og ég er kominn í massajólafrí alveg til 2. janúar. Enda hlakkar mig mikið til. Í kvöld ælta ég að lesta nissa með jólapökkum, farangrinum mínum og fullum tanki að þotueldsneiti, nissi gengur ekkert á venjulegu bensíni, það er bara fyrir venjulega bíla. Ég gekk svo langt að ég er meiraðsegja kominn með miða í göngin:) - Verð búinn að vinna klukkan 16:10 á morgun laugardag og ætla verða mættur í partý á Akureyri ekki seinna en 10, sé ekki fram á annað en það takist.
Ragga er í jólafríi, þannig að þetta blogg er ekki lesið upp, hehe. En það er enginn búinn að dásama jólaskreytinguna á forsíðunni hjá mér, þar var öllu tjaldað til. Einsog Kristrún kennari sagði við mig í gamla daga, þegar hún var að kenna mér myndmennt "þú byrjar oft mjög vel, en svo einhvernveginn veistu ekki hvenar á að hætta!" hehe ... orð að sönnu. En er samt stolltur af forsðunni, þar er að finna 2 javascript, 3 gif hreyfimyndir og þetta frábæra jólalag hljómar undir.
Svo er það jólagjafir í kvöld, IKEA í 3 skiptið í röð, alveg að fíla kjötbollurnar, maður verður að reyna ljúka þessu af, annars hefur maður nú þorláksmessu á Akureyri, milli skötu og þynnku ætti að vera hægt að koma einhverju í verk.
Hvað segir stjörnuspáin eiginlega, sem ég held að sé ætið sérskrifuð bara fyrir mig:
Vatnsberi: Hvergiland bíður þig velkominn í dag. Erfiðast er að bíða - notaðu tímann og gerðu eitthvað fyrir sjálfan þig. Ferskt loft getur gert kraftaverk. Opnaðu dyrnar og farðu út.
.. og allt er gaman þá, er það ekki einhvernveginn svona? :) En það er farið að styttast óðfluga í jólin, 10 dagar heldég að það sé núna. Ég er aldeilis búinn að vera dekra við Nissa, svo hann fari ekki í jólaköttinn. Fékk handa honum nýjann rafgeymi, nýtt stefnuljós, lét laga pústið og er að fara skipta yfir á naglana í fyrramálið, svo hann ætti að vera fær í norðurferð fyrir jól. En ég stefni á að bruna á laugardeginum 22. des til Akureyrar, hvort sem ég verð að vinna til 16:00 eða í fríi þann dag. Planið var svo að reyna ná djamminu um kvöldið, það er ekkert ósennilegt, veltur allt á nissa, guð og veðrinu. 
Maður skellti sér í perluna um helgina, eða á föstudaginn. Það var jólahlaðborð hjá Árdegi, alveg heví flott, Sveppi og Jói voru veislustjórar, Simmi átti víst að vera í stað Sveppa en komst ekki. Kom sér bara vel því Sveppalingurinn var helvíti fyndinn. Það var fullt af atriðum einsog Rúnar Júl, Hara systur og fullt af dóti sem ég man ekki eftir. Hló mig alveg máttlausann þegar Sveppi var að segja einhverja sögu um eiturlyf, man ekki alveg hvenig hún var, en endaði á því að hann sagði "og talandi um eiturlyf, þá er einmitt næsta atriðið okkar Einar Ágúst, jeiii" haha, og Einar mætti á sviðið bara "ehh, takk fyrir það .. ég er samt hættur" ... var mjög fyndið. En flestir kannast við sjóriðu, og jafnvel flugriðu ?? (ef það er til) ... fjölskyldan mín stríddi mér mikið í æsku þegar ég sagðist vera með bílriðu, við værum búin að keyra svo lengi! (var 10 ára eða eitthvað) En um helgina fékk ég perluriðu hehe, en það er nýtt sem maður fær að sitja of lengi að sumbli á snúningsgólfinu.
En mér var farið að líða illa bara á því. Svimar líka alltaf eftir lyftur og rúllustiga. Einhverjir verða að sjá um það að vera spes í þessum heimi :) ... en það var einmitt lyfta upp 5 hæðir þarna og snúningsgólf =perluriða. Mjög fyndið svo hvað allir fóru að rífast um í hvora áttina gólfið væri að fara þegar það byrjaði að snúast, það virtist enginn fatta það almennilega.. ég átti samt kollgátuna á mínu borði og stóð fastur á því að það væri að fara réttsælis, sem það svo var. Takk fyrir takk. Svo kíkkaði maður aðeins út líka á laugardaginn, bara svona af því að það var enn helgi og svona, ekkert betra að gera. En næstu helgi verður maður bara rólegur, enda vinna á laugardag og svona... og svona :)