Dr.Hrollur hlýtur að geta verið með svona neytendahorn einsog Dr.Gunni. En það sem sló sálu mína utanundir um daginn var auglýsing frá kfc, uppáhalds veitingastaðnum mínum. "0 gr transfita!" Ég hef ekki þorað að fá mér skamt hjá þeim síðan ég sá þetta, vill frekar leifa góða bragðinu að lifa í minningunni en að skemma það með transfituleysi. Ég viðurkenni það að ég veit svosem ekkert hvað hún gerir, annað en að setjast inní kransæðar og stýfla, en eitthvað hlýtir að vera gott við hana, mér dettur í hug einsog sykur í gosi ... og þá er kannski transfitulaus kfc einsog diet kók :o Það náttúrulega gengur ekki, það ætti allavega að vera þá hægt að fá transfitu með í lítilli dollu, svona einsog kokteilsósu, og kannski sprautu með, ef maðu skyldi vilja sprauta henni inní kjúllann ;) Og hvað er svo málið með kartöflumúsina og hrísgrjónin! Ef maður ætlar að vera í hollustunni, þá fer maður bara á grænan kost eða eitthvað, ekki skemma kfc :( Ég ætlaði ekkert að væla yfir verðinu á honum, en nú kostar skammtuirnn 949 krónur og fer hækkandi, fyrir þann pening getur maður fengið kíló af kjúklingabitum, 2 lítra af pepsí, 1 kg af frönskum og stóra dollu af hrásallati í bónus, sem endist í matinn örugglega 4x. Þannig að já, kannski mætti aðeins slá af verðinu hjá þeim, þarna í transfitulausa, kartöflumúsa og verðbólgukvetjandi kjúklingabitastaðnum.
Önnur gleðitíðindi, þó ekki fyrir hjartað, þá sá ég í einni af mörgum ferðum mínum í bónus, að þeir eru loks farnir að selja Red Bull! Össss! Það er nú besta blandið í bænum og veitir áfenginu hið fullkomna bragð, hressir, bætir, kætir og sprækir. Smá hjartsláttartruflanir hafa aldrei skaðað neinn, er það nokkuð?? Ég sá nú ekki verðið, ætli dósin sé ekki á 200 kall eða svo, vonandi ekki mikið meira. Sá líka euroshopper orkudrykk, hann kostaði 99 krónur, og ef ég þekki vini mína hjá euroshopper rétt, þá er þetta örugglega bara díselolía bragðbætt með ísvara :) En svo er það líka annað, einsog með redbull, um leið og hann fæst hér í bónus þá fer mesti glansinn af honum og verður ekki eins spennandi einsog þegar hann fékst bara í útlöndum, líkt og m&m&m-ið forðum daga.
Jæja, núna er klukkan að ganga 10 að morgni til!
Já, að morgni til. Ég er í viðsnúningsprógrammi á líkamsklukkunni, en hún var farin að hallast aðeins meira að sofa út langt frammeftir degi, og sofna svo ekki á næturna fyrr en langt undir morgun. Var farið að leiðast það og greip því gæsina þegar ég fann fyrir þreytu í gær klukkan 10 að fara bara að sofa! Vaknaði líka klukkan 6 í morgun og er búinn að vera vakandi síðan hehe .. en samt drulluþreyttur, en má ekki leggja mig, því þá skemmist programmið, það er bara í háttin klukkan 1 í kvöld/nótt. Maður þarf að hafa sólarhringinn réttann áður en ég byrja á vefsíðugerðarnámskeiðinu sem ég er að fara á í næstu viku, það verður örugglega ekki leiðinlegt, og hrollurinn á eftir að hafa gott af því, en þetta eru alveg 60 tímar, versna varla við það ... þannig það eru spennandi tímar framundan á hrollinum... ;)
Án þess að hafa sótt námskeiðið smíðaði ég þetta script sem sést hér til hliðar, en þetta er beintenging við seðlabankann og sýnir raungengi krónunnar, einsog það er akkúrat núna! :)
Vatnsberi: Þér tekst vel upp við að finna eitthvað aðdáunarvert í fari fólksins í kringum þig. Haltu öllum verkefnum aðskildum og raðaðu þeim upp í forgangsröð.
Sama síðan, sama ruglið en nýtt útlit. Jájá, hrollurinn fór í smá makeover í vikunni, byrjaði með smá fikti sem endaði með þessum ósköpum. Þetta er svosem ekkert nýtt, skipti bara um liti, sama grindin á bakvið. Fannst þurfa svona vetrar-kulda-kreppulit á þetta hjá mér;) ... á eftir að ákveða hvort ég hafi nokkuð farið yfir strikið með að skella íslandskortinu þarna á logoið. Útlitið á því minnti mig nefnilega eitthvað svo á venus ... sem er nú heitasta plánetan í sólkerfinu, kannski viðeigandi að heitasta síðan á internetinu hafi þannig logo -hehe.