HROLLUR.COM
spánýr á intervefnum

 

  • Heim
  • Bloggið
  • Fréttirnar
  • Myndirnar
  • Linkarnir
  • Hrollur.net
  • Hafa samband

Jólahrollvekjan

By Almar on December 17, 2008 10:08 PM | 3 Comments

shrek2.gif Eru ekki jólin að fara detta í hús með allri sinni gleði ;) Mig hlakkar nú alltaf mest til tímans milli jóla og nýárs, því þá er pakkavesenið allt að baki og aflsöppun og djamm tekið við. Ekki það að ég sé neitt úrvinda á því að vera í endalausu sumarfríi, en það verður líka gaman að geta kallað það jólafrí núna. Plönin eru alltaf að breytast, á dagskránni núna er Reykjavíkurdjamm 19.des (því ég hef nú ekki djammað hér í 5 vikur í röð!!) ...já, það er satt!, verð að ná einu góðu áður en ég fer "heim". Og daginn eftir, eða 20.des ætlaði ég mér að bruna norður og jafnvel komast í sjallann á sálarball. Veit þetta er nú fullmikil bjartsýni hjá mér að halda ég geti þetta allt sömu helgina, en eftir 5 vikna pásu heldég að það verði ekkert stórmál. Ég er að reyna redda mér fari eða bílaleigubíl til þess að þurfa ekki að splæsa í umfelgun og bensín á nissa, hann er enn á sömmerunum ;) því maður veður ekkert í seðlum svona þegar maður gerir ekki neitt. Svo hafði ég hugsað mér að skella mér suður strax eftir áramót, til þess þá að flytja út úr íbúðinni minni og koma dótinu mínu fyrir í geymslu. Þá skelli ég að sjálfsögðu vetrartuðrunum undir nissa og fyllann af bensíni, en janúar verður nú ódýrari mánuður heldur en desember, og ætti það nú að reddast. Það hefði samt verið skemmtilegast að vera búinn að þessu, en held þetta sé eina leiðin. Mér finnst samt ótrúlega leiðinlegt að flytja og þrífa, og ekki langt síðan ég gerði það síðast, en þetta verður maður víst að gera. bell4R.gif En munar allavega um að borga ekki leiguna í Reykjavík, heldur betur. Þannig að maður verður orðinn Akureyringur aftur í byrjun janúar ef ekkert breytist, einsgott að það verði stuð :)
Það væri gaman að fá að heyra af því ef einhver veit um geymslu á góðu verði fyrir sófa, rúm, eldhúsborð og stóla, tölvuborð og sófaborð, því sama hvað ég reyni þá kemst þetta ekki í nissa, eða í herbergið sem ég verð í fyrir norðan :)

Vatnsberi: Hver kunningi sem þú eignast reynir á félagsfærnina.
Tilfinningar þínar láta þér líða vel og hugsa um lífið á jákvæðan hátt.

3 Comments

Ernir | December 18, 2008 10:07 PM | Reply

Sammála þér með milli jóla og nýjárs. Þoli ekki þetta jólastress fyrir jólin.

BeggaRacer | December 23, 2008 12:55 PM | Reply

Það varð ekki svo að góða fólkið og ég kom saman...bara seinna ;)
En ég segi gleðileg jól og hafðu það rosa gott um jólin og 4ever þarna fyrir norðan :)
Sjáumst :)

Helga | December 31, 2008 12:07 AM | Reply

jæja hvernig væri nú að blogga?? Ætlarðu kannski að halda áramót við það eða??

En hvað segirðu ekki mega bitur að missa af útúrsjúskuðu áramótapartý @ Vöfflufell, og Sálin á eftir, ég held það skooo

Leave a comment

Search

January 2010

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Categories

Monthly Archives

  • November 2009 (1)
  • September 2009 (1)
  • July 2009 (1)
  • June 2009 (1)
  • May 2009 (1)
  • April 2009 (2)
  • March 2009 (1)
  • February 2009 (1)
  • January 2009 (2)
  • December 2008 (1)
  • November 2008 (2)
  • October 2008 (2)
  • September 2008 (1)
  • July 2008 (1)
  • June 2008 (1)
  • May 2008 (1)
  • April 2008 (2)
  • March 2008 (1)
  • February 2008 (2)
  • January 2008 (2)
  • December 2007 (3)
  • November 2007 (3)
  • October 2007 (4)
  • September 2007 (2)
  • August 2007 (3)
  • July 2007 (2)
  • June 2007 (2)
  • May 2007 (4)
  • April 2007 (3)
  • March 2007 (2)

Pages

  • Subscribe to feed Subscribe to this blog's feed

About this Entry

This page contains a single entry by Almar published on December 17, 2008 10:08 PM.

Neytendahornið was the previous entry in this blog.

Janúarpistillinn is the next entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.25
Powered by Movable Type