Gamli góði hrollalingurinn er kominn aftur í loftið eftir svoltið bras. Það er enn fullt af böggum í kerfinu sem ég er enn að laga en allt í allt er þetta bara einsog var á gömlu síðunni nema nýrri kerfi og annað útlit. Hýsingin er Íslensk en mjög hraðvirk og góð finnst mér. Verst bara að það er mesta fjörið við að setja þetta upp, svo eru notin orðin minni á meðan facebook og svoleiðis síður eru til staðar. En maður getur leikið sér eitthvað að þessu.
Ég nota enn Movable Type fyrir bloggið og Coppermine Photo Gallery fyrir myndirnar og er núna með nýjustu útgáfur af þeim, fullt af flottum fídusum sem hafa bæst við. Svo er ég enn að brasa í rss-parserum, mér finnst svo gaman að láta síðuna hjá mér stela efni í rauntíma af öðrum síðum einsog sést hérna í "Fréttirnar" flipinn hér að ofan. En þetta er tekið af mbl, vísi, rúv og dv og er aldrei eldra en 2 tíma gamalt. Það er hægt að sjá aldurinn á fréttunum í skoða skyndiminni takkanum, og líka hægt að tæma skyndiminnið, en þá skrifar síðan þetta uppá nýtt. Ég setti 2 tíma skyndiminni á þetta til að hafa þetta hraðvirkara og að valda minna álagi á hina þjónana sem efnið er tekið af. Ég nota þessar síður alltaf sjálfur þegar ég vill skoða hvað er að gerast. Síðan sýnir MBL og VÍSI en það er takki þarna efst til að breyta yfir í RÚV og DV.
Linkarnir eru bara á teikniborðinu, ekkert af viti komið þar inn. Setti reyndar þar inn 3 skemmtileg script. Eitt þeirra sýnir displaymyndina af facebook, nafnið og status og uppfærist sjálfkrafa þegar einhverju er breytt. Annað sýnir MSN stöðu, hvort maður sé online eða ekki og hvaða nikk maður er að nota, meiraðsegja hægt að smella á það og byrja spjalla án þess að vera með msn í tölvunni eða msn account. Þriðja sýnir stöðuna á skype, hvort maður sé online eða ekki, ég nota skype eiginlega ekki neitt, það kannski kemur að því, svo ég geti brúkað flottu skype-símstöðina mína.
Næsta verkefni verður að tengja bloggkerfið við facebook, það er til plugin fyrir það sem verður gaman að sjá hvernig virkar.
Hrollur.net er enn uppi, á eftir að ákveða hvað ég geri við hann. Bloggin eru núna læst þannig það er ekki hægt að commenta þar, en ég flutti þau öll hingað svo heimurinn gæti notið lengur ;)
Vatnsberi: Þú getur aðeins sjálfum þér um kennt ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð. Annars áttu á hættu kringumstæður sem þú ræður ekki við. - haha so true
Neinei, Nissi er ekki með HPV vírusinn, heldur splæsti ég á hann nýjum rafgeymi núna um mánaðarmótin. Geymirinn er framleyddur af VARTA ... ég veit ótrúlega fyndið ;) Ég var búinn að vera straumlaus síðan 6. mars og var ekki að höndla það neitt rosalega vel, þvílíkur munur að geta núna farið hvert sem er og hvenar sem er.
Ef ég gleymi sjónvarpinu á og er kannski í tölvunni þá fer það yfirleitt ekkert í taugarnar á mér, en ef gilmore girls eru á þá verð ég svo pirraður á suðinu í þeim að ég verð að skipta um stöð. Hefur einhver tekið eftir því hvað þær ná mörgum orðum á mínútu?? Ég er viss um að handritið þeirra er janfnþykkt og símaskráin fyrir einn þátt. Þær tala STANSLAUST! eða tuða! Meiraðsegja voru þær að æfa skylmingar um daginn sem ég sá óvart, og þær töluðu allan tímam meðan þær voru að skylmast. Þær eru 2x á dag á einni sky stöðinni og á rúv líka, og mér finnst bara alltaf þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá séu þær þarna, tuðandi á fullu. Ég bara trúi ekki að einhver geti horft á heilann þátt með þeim án þess að missa vitið. .... hmm þetta hefði kannski frekar átt heima í nöldurhorninu :)