HROLLUR.COM
keyrir á nýju kerfi

 

  • Heim
  • Bloggið
  • Fréttirnar
  • Myndirnar
  • Linkarnir
  • Hafa samband
  • Upload
  • Hrollur.net



Mon 06. Feb 2012 - 05:13
Heathrow: Krafðir skýringa
Stjórnendur Heathrow-flugvallar í Lundúnum hafa verið krafðir skýringa á því hvers vegna helmingur allra brottfara þaðan felldur niður í gær löngu eftir að það hætti að snjóa. 600 flugvélar komust ekki á loft vegna 8 sentimetra snjókomu. Engin röskun varð á ferðum um aðra velli borgarinnar, Gatwick, Stansted og Luton. Umferð um Heathrow lamaðist mikið til í um viku tíma fyrir jól í hitteðfyrra. Þá voru ekki til næg snjóruðningstæki.


Mon 06. Feb 2012 - 04:54
Tjaldaði við Glym í Hvalfirði
Menn úr björgunarsveit Landsbjargar á Akranesi komu í nótt erlendri ferðakonu til aðstoðar í Hvalfirði. Konan, sem er á fertugsaldri, hafði tjaldað við fossinn Glym. Hún hafði samband við Neyðarlinuna um miðnætti eftir að tók að hvassa mjög. Tjaldið fauk af henni og búnaður hennar fauk út í veður og vind. Um 10 björgunarsveiatrmenn voru sendir til aðstoðar. Þar sem konan gat gefið nokkuð góða lýsingu á því hvar hún var stödd tók ekki langan tíma að finna hana.


Mon 06. Feb 2012 - 03:31
Mannréttindasamtök ákærð í Kaíró
Stjórnvöld í Egyftalandi tilkynntu í gær að yfir 40 starfsmenn frjálsra félagasamtaka verði ákærðir fyrir ólöglega fjármögnun þeirra. Samtökin eru flest erlend og vinna að mannréttindum og lýðræðisumbótum. Flestir hinna ákærðu eru útlendingar, þar á meðal 19 Bandaríkjamenn og fimm Serbar. Allir eru í farbanni. Herforingjaráðið, sem fer með völdin í Egyftalandi, sakar erlendu samtökin um að fjármagna mótmælin gegn sér. Bandaríkjastjórn krafðist í gærkvöld nánari skýringa. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu um helgina að fjárhagsaðstoðin við Egyftaland verði endurskoðuð vegna málsins. Hún nam í fyrra 1,3 miljörðum dollara.


Mon 06. Feb 2012 - 03:24
Giants unnu Ofurskálina
New York Giants sigruðu New England Patriots í úrslitaleik ameríska fótboltans í kvöld. Leiknum lauk með 21 stigi Giants gegn 17 stigum Patriots. Patriots voru með yfirhöndina mestan hluta leiksins og náðu mest 8 stiga forystu. Þeir gáfu hinsvegar eftir þegar líða fór á þriðja leikhluta og það dugði Giants til að tryggja sér sigurinn.Eli Manning, leikstjórnandi Giants var valinn maður leiksins. Hann átti frábæra sendingu á Mario Manningham undir lokin sem kom þeim aftur inn í leikinn en 75% sendinga hans í leiknum heppnuðust.



Sun 05. Feb 2012 - 23:42
John F. Kennedy hélt við 19 ára stúlku
Fyrrverandi lærlingur í Hvíta húsinu í Washington, Bandaríkjunum, segir frá ástarsambandi sínu og fyrrverandi forseta Bandaríkjanna John F. Kennedy. Lesa meira →


Sun 05. Feb 2012 - 22:24
„Rétt að sekta hann fyrir þessa hegðun“
„Jón getur reynt að þræta fyrir sína framkomu en það voru vitni að þessum atburði. Það var að mínu mati rétt ákvörðun af dómara að sekta hann fyrir þessa ósæmilegu hegðun,“ segir Bryndís Eiríksdóttir, aðstandandi manns af portúgölskum uppruna, sem í vikunni hlaut miskabætur vegna líkamsárásar. Hæstaréttarlögmaðurinn Jón Egilsson var verjandi annars mannsins sem krafinn var um bætur vegna árásarinnar. Dómurinn dæmdi Jón til greiðslu réttarfarssektar að upphæð 100.000 krónum fyrir ósæmilega hegðun í réttarsal. Lesa meira →


Sun 05. Feb 2012 - 20:43
Bónuslækkanir hjá forstjóra fjárfestingabanka
Bónusgreiðslur Lloyd Blankfein, forstjóra fjárfestingarbankans Goldman Sachs, hafa verið lækkaðar en hann er einn af þeim forstjórum sem hefur þurft að taka á sig slíka lækkun. Lækkanirnar eru sagðar undirstrika dapurlegt ár hjá bönkunum á Wall Street í Bandaríkjunum. Lesa meira →


Sun 05. Feb 2012 - 19:37
Gunnar vill verða biskup
Séra Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur í Digraneskirkju, hefur ákveðið að bjóða sig fram í komandi biskupskjöri. Í tilkynningu sem Séra Gunnar hefur sent frá segist hann ekki telja sig vera betur til þess fallinn en aðra. Heldur vegna þess að hann beri traust til alls þess góða fólks sem hefur hvatt hann áfram í starfi sínu. Lesa meira →


Sun 05. Feb 2012 - 18:40
Milljónamæringar á einu augabragði
Allir íbúar smábæjarins Sodeto á Spáni, að einum undanskildum, urðu milljónamæringar á einu augabragði dag einn í desember síðastliðnum. Sodeto er lítið bændaþorp á norðurvesturhluta Spánar í um þriggja klukkustunda akstursfjarlægð frá höfuðborg Katalóníu, Barcelona. Á undanförnum árum hafa bæjarbúar, sem í dag eru 250, jafnan styrkt heimilissamtök bæjarins og keypt af þeim miða með sömu númeraröð í hinu risastóra og sögufræga El Gordo-lóttói, eða „þeim feita“ eins og lottópotturinn er jafnan kallaður. Lítill hluti ágóðans af lottósölunni rennur til samtakanna til að létta undir við ýmsar bæjarhátíðir sem haldnar eru nokkrum sinnum á ári. Lesa meira →


Sun 05. Feb 2012 - 17:58
Enn ein endurkoman hjá Man. United
Manchester United náði að knýja fram ótrúlegt jafntefli gegn Chelsea á Stamford Bridge er liðin skildu jöfn, 3-3, í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Lesa meira →


Sun 05. Feb 2012 - 17:23
FL Group tók Glitni yfir með aðstoð Kaupþings
Kaupþing sölutryggði tæplega 20 prósenta hlut Karls Wernerssonar, Einars Sveinssonar og tengdra aðila í Glitni fyrir rúmlega 80 milljarða króna í apríl 2007. Á þessum tíma áttu þeir samtals um 27 prósenta hlut í bankanum. Afleiðing sölutryggingarsamningsins var sú að fjárfestingarfélagið FL Group, með þá Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason í broddi fylkingar, náði undirtökunum í Glitni eins og frægt er orðið. Þetta kemur fram í „samningi um sölutryggingu á hlutafé í Glitni“ sem DV hefur undir höndum. Samningurinn er undirritaður af starfsmanni Kaupþings og þeim Karli Wernerssyni og Einari Sveinssyni. Lesa meira →


Google Search

March 2011

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Myndirnar

EPSN4479.JPG
IMG_0373~1.JPG
EPSN4289.JPG
okt2008_005.jpg
EPSN4990.JPG
IMG_0295~1.JPG
Mynd_001.jpg
EPSN4285.JPG

Recent Entries

  • Heim sæta heim
  • Day 43
  • T minus 500 hours
  • Hæ hó ...
  • Noregur
  • Hrollur Púnktur Kom
  • Varta í Nissa
  • Nöldurhornið
  • hrollarnir báðir fluttir
  • Akureyringur

Recent Comments

  • Helga: já nákvæmlega það sem ég er löngu búin að segja read more
  • Almar: Hehe, já þetta er rétt hjá ykkur báðum, maður verður read more
  • Rúnar Ágúst: Ég tek undir Siggeir.. farðu á norskunámskeið! Þýðir ekkert að read more
  • Siggeir: Við erum ekki öll Gunnar sko, sumir hafa ennþá athyglisspan read more
  • Helga: Halló halló!! ert þú hættir í blogginu?? Þá eru allir read more
  • Helga: ahhh skil en sniðugt, maður getur bara skroppið á launum read more
  • almar: hehe, já alltaf gaman í excel. Maður heldur "laununum" í read more
  • Helga: hahahaha exel lúði, en hva verðuru þá bara launalaus í read more
  • Ernir: Kíldu á þetta kall. read more
  • Siggeir: Ég skal passa Nissa fyrir þig Almar, ég átti nú read more

Search this blog

Powered by Movable Type 5.01

Admin Login      



Individual visits per day

Powered by Movable Type